Hópur úr KR tekur þátt í borðtennismóti í Osló
Hópur úr Borðtennisdeild KR tekur þátt í 47. Mega Scandinavian Cup í Osló 30. maí – 2. júní 2019. Alls verða 11 keppendur á vegum deildarinnar og nokkrir foreldrar fara með. Þjálfari í ferðinni verður Auður Tinna Aðalbjarnardóttir og Einar Geirsson, fyrrum yfirþjálfari deildarinnar, sem búsettur er í Osló, verður einnig að þjálfa hluta mótsins.
Þátttakendur frá KR
Lið 1:
Gestur Gunnarsson
Ellert Kristján Georgsson
Lið 2:
Eiríkur Logi Gunnarsson
Jóhannes Kári Yngvason
Lið 3:
Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir
Lóa Floriansdottir Zink
Lið 4:
Guðrún Gestsdóttir
Anna Sigurbjörnsdóttir
Lið 5:
Þuríður Þöll Bjarnadóttir
Freyja Dís Benediktsdóttir
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir keppir ekki í liðakeppni en keppir í tveimur aldurstengdum flokkum í einliðaleik.
Dagskráin í einstaklingskeppni á mótinu er svona: http://www.b72.no/wp-content/uploads/2019/04/2019-Invitasjon-B72-Mega-Cup9201-1.pdf
Liðakeppni fer fram á fimmtudegi og föstudegi og einstaklingskeppni á laugardegi og sunnudegi.
Meðal liða í liðakeppninni er unglingalið frá Færeyjum. Meðal leikmanna Færeyinga eru Anja Wongwai og Britt Michelsen, sem kepptu á Arctic mótinu hér á landi um síðustu helgi.
Á forsíðunni má sjá Lóu Floriansdóttur Zink, einn keppenda KR á mótinu.