Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ingi Darvis á verðlaunapalli í tvíliðaleik á NETU

Keppni á Norður-Evrópumótinu (NETU) í Eistlandi hélt áfram laugardaginn 26. september. Áfram var keppt var í einliðaleik og keppni hófst í tvílðaleik og tvenndarleik.

Ingi Darvis Rodriguez er kominn í undanúrslit í tvíliðaleik karla en hann leikur með Litháanum Ignas Sisanovas. Þeir mæta Aleksi Räsänen og Alex Naumi frá Finnlandi kl. 10.30 að staðartíma.

Einliðaleikur

Ingi Darvis komst líka í 8 manna úrslit í einliðaleik karla. Hann mætti fyrst Martin Frizel frá Litháen og vann 4-2. Næst mætti Ingi Madis Moos frá Eistlandi og sigraði 4-2. Hann féll loks úr leik með 2-4 tapi gegn Martin Fröseth frá Noregi.

Magnús Gauti tapaði 3-4 í 32 manna úrslitum fyrir Oleg Kartuzovs frá Lettlandi.

Birgir tapaði sömuleiðis 3-4 í 32 manna úrslitum fyrir Malik Hartvig Bruun Severinsen frá Danmörku.

Tvíiðaleikur

Ingi Darvis og Litháinn Ignas Sisanovas mættu fyrst pari frá Eistlandi og unnu 3-0. Þvínæst sigruðu þeir annað eistneskt par 3-2 og voru þar með komnir í undanúrslitin.

Magnús Gauti og Matthías spiluðu saman. Þeir mættu fyrst blönduðu pari frá Lettlandi og Litháen og unnu 3-1. Í 8 liða úrslitum töpuðu þeir í oddalotu fyrir Stanislav Strogov og Andrei Maltizov frá Eistlandi.

Birgir lék með Poul Pedersen frá Grænlandi. Þeir töpuðu fyrir grænlenska parinu Ivik Nielsen og Rune Schultz 10-12 í oddalotu í 32 liða úrslitum.

Guðbjörg Vala og Sól spiluðu saman. Þær töpuðu 0-3 í 16 liða úrslitum fyrir eistnesku pari.

Tvenndarleikur

Ingi Darvis og Guðbjörg Vala léku saman. Þau lögðu par frá Litháen 3-2 í 32 liða úrslitum en töpuðu 1-3 fyrir eistnesku pari í 16 liða úrslitum.

Magnús Gauti og Sól töpuðu 0-3 fyrir norsku pari í 32 liða úrslitum og voru þar með úr leik.

Slóð á vefsíðu mótsins: https://eltl.ee/voistlused/575/

Á forsíðumyndinni frá Sindre má sjá Inga Darvis og meðspilara í tvíliðaleik á mótinu.

Aðrar fréttir