Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ingi Darvis og Magnús Gauti hækka á evrópska styrkleikalistanum

Ingi Darvis Rodriguez, Víkingi og Magnús Gauti Úlfarsson, BH, hoppuðu upp á evrópska styrkleikalistanum eftir frammistöðu sína á Finlandia Open í desember.

Ingi Darvis fór úr sæti 388 i desember 2023 í sæti 154 í janúar 2024.
Magnús Gauti hækkaði úr sæti 376 í sæti 161 á sama tíma.

Aðrir íslenskir karlar á listanum í janúar 2024 eru Magnús Jóhann Hjartarson, Víkingi, í sæti 453, Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, BH, í sæti 459 og Birgir Ívarsson, BH, í sæti 466.

Aldís Rún Lárusdóttir, KR, er eina íslenska konan á listanum, en hún er í sæti 169.

Mynd af Inga Darvis úr myndasafni.

Aðrar fréttir