Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ingi Darvis og Nevena unnu Reykjavíkurleikamótið 2023

Reykjavíkurleikarnir í borðtennis 2023 fóru fram í gær í TBR-Íþróttahúsinu í Laugardal í umsjón Borðtennisdeildar Víkings. Mótið tókst mjög vel og voru margir spennandi og góðir leikir. Sigurvegarar mótsins voru Víkingarnir Ingi Darvis Rodriguez og Nevena Tasic en góðir gestir frá Frakklandi léku á mótinu. Yfirdómari mótsins var Árni Siemsen.

Í karlaflokki léku í undanúrslitum Ingi Darvis Víkingi gegn Frakkanum Hamidou Sow, leikar fóru þannig að Ingi Darvis sigraði eftir hörkuleiki 4 – 1 (11-7, 5-11, 11-5, 17-15, 13-11).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Quentin Praduelle Frakklandi gegn Bedö Norbu KR, leikar fóru þannig að Quentin sigraði nokkuð örruglega 4 – 0 (11-4, 11-1, 11-4 og 11-2).

Úrslitaleikinn léku því Ingi Darvis Víkingi gegn Quentin Praduelle Frakklandi. Um hörkuleik og góðan úrslitaleik var að ræða þar sem Ingi Darvis lék mjög vel og sigraði 4 – 0 (11-8, 11-9, 11-5 og 11-8).

Í kvennaflokki léku í undanúrslitum Nevena Tasic Víkingi gegn Anna Marczak HK/Póllandi, Nevena sigraði nokkuð örruglega 4 – 0 (11-5, 11-5, 11-7 og 11-4).

Í hinum undanúrslitaleiknum lék Stella Karen Kristjánsdóttir Víkingi gegn Önnu Sigurbjörrnsdóttur KR, leikar fóru þannig að Stella sigraði eftir góða leiki 4 – 0 (11-4, 11-8, 11-1 og 11-7).

Úrslitaleikinn léku því Nevena Tasic Víkingi gegn Stellu K. Kristjánsdóttur. Nevena sigraði 4 – 0 (11-4, 11-5, 11-3 og 11-5).

Úrslitin í mótinu voru þannig:

Einliðaleikur karla:
1. Ingi Davis Víkingur
2. Quentin Praduelle Frakklandi
3-4. Hamidou Sow Frakklandi
3-4. Bedö Norbu KR

Einliðaleikur kvenna:
1. Nevena Tasic Víkingur
2. Stella Karen Kristjánsdóttir Víkingur
3-4. Anna Sigurbjörnsdóttir KR
3-4. Anna Marczak HK

Aðrar fréttir