Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Ingi Darvis Rodriguez er borðtennismaður mánaðarins

Borðtennismaður aprílmánaðar 2026 er Ingi Darvis Rodriguez, sem varð fyrir mánuði síðan þrefaldur Íslandsmeistari fullorðinna (einliðaleikur karla, tvíliðaleikur karla og tvenndarleikur). Fulltrúi bordtennis.is hitti Inga í TBR, hans íslenska heimavelli, skömmu eftir Íslandsmótið – en auk þess að spila fyrir Víking og landsliðið spilar hann líka fyrir Vetlanda BTK í næstefstu deild Svíþjóðar.

Hvar, hvenær og hjá hverjum byrjaðirðu að æfa borðtennis?
„Ég byrjaði hjá Víkingi hérna í TBR og það byrjaði eiginlega í frístundaheimili – samt í Þróttheiminum þegar Daði og Áki voru að sjá borðtennis. Ég og vinur minn Ísak [Indriði Unnarsson], sem æfir hérna og þjálfar líka, vorum að æfa á sínum tíma og þeir drógu okkur inn í þetta. Ég kom hérna og æfði síðan.“

Hvaða gúmmí notarðu?
„Ég nota Dragon Power í forhönd og Platinum í bakhönd – DNA bæði.” Af þessu má sjá að Stiga-gúmmí eru í uppáhaldi hjá Inga eins og stendur.

Ertu með einhverja hjátrú eða hefðir fyrir leiki?
„Já, ég les bók fyrir leik sem heitir The Inner Game of Tennis eftir W. Timothy Gallwey – bara til að róa andlega partinn og gíra mig inn í leikinn.“ Á grundvelli árangurs geta fréttaritarar ekki annað en mælt með að upprennandi borðtenniskeppendur gluggi í þessa bók.

Þú varst að verða þrefaldur Íslandsmeistari. Á hvað skrifar þú þann árangur?
„Bara að æfa ógeðslega mikið. Ég held að það vita allir að ég æfi mest af öllum, þannig að það er engin furða að ég sé Íslandsmeistari.“

Áttu erlenda borðtennis fyrirmynd?
„Zhang Jike á sínum tíma – hann var ógeðslega góður og ógeðslega nettur. En right now myndi ég segja Wang Chuqin, því hann er ógeðslega góður og stöðugur og eiginlega bara bestur.“

Er einhver leikmaður eða þjálfari sem hefur haft áhrif á þig?
„Bara allir í Víking – Sæli og allir þessir sem byrjuðu með mér, og Gummi. Og líka í Svíþjóð þegar þeir tóku mig inn.“ Ingi hefur búið í Halmstad í Svíþjóð í tæp fjögur ár þegar þetta er skrifað – en meðfram stífum borðtennisæfingum og keppni leggur hann stund á viðskiptafræði í fjarnámi við Háskólann á Akureyri.

Áttu einhverjar góðar sögur úr borðtennisferð?
„Ég er með svo margar að ég man eiginlega ekki eitthvað sérstakt – en já, það eru örugglega einhverjar fyndnar sögur þarna.“

Af hverju er borðtennis besta íþróttin?
„Bara af því að hún er ógeðslega erfið. Maður þarf að hugsa ógeðslega mikið og gera sitt besta þótt að maður sé ekki að spila ógeðslega vel – og þarf einhvern veginn að breyta taktík alltaf bara í miðjum leik. Þess vegna er þetta svo skemmtilegt.“

Og með þeim glæsilegu lokaorðum kveðjum við Inga og óskum honum góðs gengis í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil liða nú á laugardaginn – en ef A-lið Víkings vinnur þann leik hefur Inga tekist að vinna alla Íslandsmeistaratitla karla í íþróttinni í ár.

Lesendur eru jafnframt hvattir til að halda áfram að senda inn tilnefningar, til að styðja við góða umfjöllun árið 2026.

Aðrar fréttir