Ísak Indriði og Sól sigruðu á 2. flokks móti ÍFR
Ísak Indriði Unnarsson, Víkingi og Sól Kristínardóttir Mixa, BH sigruðu á 2. flokks móti ÍFR, sem haldið var í Íþróttahúsi ÍFR við Hátún 30. janúar.
Um 30 keppendur tóku þátt í 2. flokki karla og var keppt í 6 riðlum. Ísak Indriði Unnarsson úr Víkingi sigraði Ellert Kristján Georgsson úr KR í úrslitaleik.
Í kvennaflokki áttust tvíburasysturnar Sól og Alexía Kristínardætur Mixa úr BH við í baráttunni um sigurinn og hafði Sól betur.
Verðlaunahafar
2. flokkur karla
1. Ísak Indriði Unnarsson, Víkingur
2. Ellert Kristján Georgsson, KR
3.-4. Kamil Mocek, Víkingur
3.-4. Róbert Már Barkarson, Víkingur
2.flokkur kvenna
1. Sól Kristínardóttir Mixa, BH
2. Alexía Kristínardóttir Mixa, BH
3. Inga Hanna Jóhannsdóttir, ÍFR
4. Hildigunnur Jónína Sigurðardóttir, ÍFR
ÁMU