Ísland sigraði lið Azerbaijan á Evrópumótinu í Borðtennis í Austurríki.
Íslenska liðið spilaði í dag þrjá leiki á Evrópumótinu í Austurríki. Byrjunin var brösótt en liðið tapaði 3-0 gegn liðum Letta og Lúxemborg. Betur gekk í þriðja leiknum þegar liðið sigraði lið Azerbaijan 3-1. Átti Daði Freyr Guðmundsson sterka endurkomu en hann var 2-0 undir þegar hann sneri leiknum við og sigraði 3-2.