Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmeistararnir enn ósigraðir í 1. deildum karla og kvenna

Annar leikdagur í 1. deildum karla og kvenna var í TBR-húsinu í dag, þegar 3. og 4. umferð í deildarkeppninni fór fram. Íslandsmeistarar Víkings-A í 1. deild karla eru enn ósigraðir eftir leiki dagsins og hafa 8 stig eftir 4 leiki. Það sama má segja um Íslandsmeistara KR-A í 1. deild kvenna. Þetta eru einu ósigruðu liðin eftir 4 leiki.

Næstu lið í 1. deild karla eru HK-A og Víkingur-C 6 stig í 2. og 3. sæti, KR-A og KR-B hafa 2 stig og Víkingur-B hefur ekkert stig.

Staðan í 1. deild kvenna er sú að á eftir KR-A koma HK og Víkingur-A með 6 stig, KR-B hefur 4 stig, en KR-C og Víkingur-B hafa ekkert stig.

Úrslit úr einstökum liðsleikjum má sjá hér fyrir neðan, og þau má líka finna á vef Tournament Software undir fyrirsögninni Íslandsmót í liðakeppni 2015-2016.

1. deild karla

Víkingur-B – Víkingur-C 0-4

  1. Stefán Birkisson – Ársæll Aðalsteinsson 1-3
  2. Kristján Jónasson – Óli Páll Geirsson 2-3
  3. Erlendur Guðmundsson – Arnór Gauti Helgason 0-3
  4. Kristján/Stefán – Ársæll/Óli 0-3

HK-A – KR-B 4-3

  1. Brynjólfur Þórisson – Kári Ármannsson 0-3
  2. Csanád Forgács-Bálint – Ingi Brjánsson 3-1
  3. Bjarni Þorgeir Bjarnason – Skúli Gunnarsson 3-0
  4. Bjarni/Csanád – Kári/Skúli 3-1
  5. Csanád Forgács-Bálint – Kári Ármannsson 0-3
  6. Brynjólfur Þórisson – Skúli Gunnarsson 0-3
  7. Bjarni Þorgeir Bjarnason – Ingi Brjánsson 3-1

KR-A – Víkingur-A 1-4

  1. Hlöðver Steini Hlöðversson – Daði Freyr Guðmundsson 0-3
  2. Pétur Marteinn Tómasson – Magnús Finnur Magnússon 3-1
  3. Breki Þórðarson – Magnús Jóhann Hjartarson 2-3
  4. Breki/Pétur – Daði/Magnús Jóhann 2-3
  5. Pétur Marteinn Tómasson – Daði Freyr Guðmundsson 1-3

Víkingur-B – HK-A 3-4

  1. Erlendur Guðmundsson – Csanád Forgács-Bálint 0-3
  2. Kristján Jónasson – Bjarni Þorgeir Bjarnason 3-2
  3. Stefán Birkisson – Brynjólfur Þórisson 3-0
  4. Erlendur/Kristján – Bjarni/Csanád 2-3
  5. Kristján Jónasson – Csanád Forgács-Bálint 0-3
  6. Erlendur Guðmundsson – Brynjólfur Þórisson 3-0
  7. Stefán Birkisson – Bjarni Þorgeir Bjarnason 0-3

KR-A – Víkingur-C 2-4

  1. Pétur Marteinn Tómasson – Óli Páll Geirsson 1-3
  2. Breki Þórðarson – Arnór Gauti Helgason 0-3
  3. Hlöðver Steini Hlöðversson – Ársæll Aðalsteinsson 0-3
  4. Breki/Pétur – Ársæll/Óli Páll 3-2
  5. Breki Þórðarson – Óli Páll Geirsson 3-2
  6. Pétur Marteinn Tómasson – Ársæll Aðalsteinsson 1-3

Víkingur-A – KR-B 4-2

  1. Magnús Jóhann Hjartarson – Karl A. Claesson 3-0
  2. Daði Freyr Guðmundsson – Ellert Kristján Georgsson 3-0
  3. Magnús Finnur Magnússon – Kári Ármannsson 1-3
  4. Daði/Magnús Jóhann – Kári/Skúli 1-3
  5. Daði Freyr Guðmundsson – Karl A. Claesson 3-0
  6. Magnús Jóhann Hjartarson – Kári Ármannsson 3-1

1. deild kvenna

Víkingur-A – KR-A 0-3

  1. Eyrún Elíasdóttir – Guðrún G Björnsdóttir 1-3
  2. Berglind Ósk Sigurjónsdóttir – Aldís Rún Lárusdóttir 0-3
  3. Berglind/Eyrún – Aldís/Guðrún 1-3

Víkingur-B – HK-A 0-3

  1. Stella Karen Kristjánsdóttir – Hrefna Namfa Finnsdóttir 0-3
  2. Þórunn Ásta Árnadóttir – Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir 0-3
  3. Stella/Þórunn – Hrefna/Kolfinna 1-3

KR-B – KR-C  3-0

  1. Sveina Rósa Sigurðardóttir – Guðrún Ólafsdóttir 3-0
  2. Karitas Ármannsdóttir – Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir 3-1
  3. Ársól Arnardóttir/Sveina – Guðrún/Hrafnhildur 3-0

Víkingur-A – KR-C 3-0

  1. Eyrún Elíasdóttir – Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir  3-0
  2. Berglind Ósk Sigurjónsdóttir – Guðrún Ólafsdóttir 3-0
  3. Berglind/Eyrún – Guðrún/Hrafnhildur 3-0

 

HK-A – KR-B 3-0

  1. Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir – Sveina Rósa Sigurðardóttir 3-1
  2. Hrefna Namfa Finnsdóttir – Ársól Arnardóttir 3-2
  3. Hrefna/Kolfinna – Ársól/Sveina 3-0

KR-A – Víkingur-B 3-0

  1. Guðrún G Björnsdóttir – Stella Karen Kristjánsdóttir 3-0
  2. Ásta M. Urbancic – Þórunn Ásta Árnadóttir 3-0
  3. Ásta/Guðrún – Stella/Þórunn 3-0

Á myndinni má sjá Íslandsmeistara KR-A 2014-2015.

 

ÁMU (uppfært 11.12.)

 

Aðrar fréttir