Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót 2019

Íslandsmótið í borðtennis 2019 Íslandsmótið borðtennis fer
fram í íþróttahúsi HK Digranesi helgina 2. – 3. mars 2019.

 Mótið hefst á
laugardeginum kl.10 og lýkur með verðlaunaafhendingu um kl. 14:30 á
sunnudeginum.

Leikið verður í eftirtöldum flokkum:

• Tvíliðaleikur, karla og kvenna.

• Tvenndarkeppni.

• Einliðaleikur í meistaraflokki,
1. og 2. flokki karla og kvenna.

Dagskrá laugardaginn 2. mars:

• 10.00 Tvenndarkeppni, leikið til úrslita

 • 10:00 Einliðaleikur
2. flokkur karla, leikið fram að undanúrslitum

• 12:00 Tvíliðaleikur karla, leikið fram að undanúrslitum

• 12:00 Tvíliðaleikur kvenna, leikið fram að undanúrslitum

• 13:00 Einliðaleikur 2. flokkur kvenna, leikið fram að
undanúrslitum

• 13:00 Einliðaleikur meistaraflokkur kvenna, leikið fram að
undanúrslitum

• 14:00 Einliðaleikur meistaraflokkur karla, leikið fram að
undanúrslitum • 14:30 Einliðaleikur 1. flokkur kvenna, leikið fram að
undanúrslitum

• 14:30 Einliðaleikur 1. flokkur karla, leikið fram að undanúrslitum

Dagskrá sunnudaginn 3. mars:

• 11:00 Undanúrslit í 1. og 2. flokki karla og kvenna

• 11:30 Úrslitaleikir í 1. og 2. flokki karla og kvenna

• 12:00 Undanúrslit í tvíliðaleik karla og kvenna

• 12:30 Úrslitaleikir í tvíliðaleik karla og kvenna

• 13:00 Undanúrslit í meistaraflokki karla og kvenna

• 14:00 Úrslitaleikir í meistaraflokki karla og kvenna

• 14:30 Verðlaunaafhending

Fyrirkomulag keppni Leikinn verður einfaldur útsláttur 3-5
lotur í öllum flokkum nema í meistaraflokki karla og kvenna, þar verða leiknar
4-7 lotur.

Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista
BTÍ frá 1. febrúar 2019.

Leikið verður á Stiga Expert borðum með hvítum þriggja stjörnu Stiga plastkúlum.

 Mælst er til þess að
leikmenn leiki í búningum síns félags.

Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum
flokkum.

Þátttökugjöld og skráning Skráningargjald er kr.2.000 í einstaklingskeppni og kr. 3.000 fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni. Leikmenn skulu greiða mótsgjöld áður en keppni hefst. Tekið verður við kortum og peningum. Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 27. febrúar kl 18:00 Skráning fer fram á vef Tournament Software (https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=5803D67D-8A37-4977-B84B-1C88BC3C55F7). Setja skal kennitölu sem „Member ID“. Á vef BTÍ (https://bordtennis.is) eru leiðbeiningar um stofnun reiknings og skráningu á Tournament Software. Þeir sem hafa þegar stofnað reikning til að skrá sig á mót geta notað hann aftur. Kennitölur þurfa að fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.

Dregið verður í mótið 28. febrúar kl. 20:00. Að loknum
drætti verður hann birtur á vef Tournament Software. Ekki verður bætt við
skráningum eftir að dregið hefur verið í mótið nema að um sannanleg mistök
mótsstjórnar sé að ræða.

Samkvæmt ákvörðun stjórnar BTÍ er þátttaka á Íslandsmótum
aðeins heimil íslenskum ríkisborgurum og erlendum ríkisborgururum sem hafa
verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram.

 Yfirdómari: Hannes
Guðrúnarson.

Mótshaldari: Borðtennisdeild HK.

Aðrar fréttir