Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót 2021

Íslandsmótið í borðtennis fer fram í TBR – Íþróttahúsinu við Gnoðarvog helgina 6.–7. mars 2021. Mótið hefst á laugardeginum kl.10:30 og lýkur með verðlaunaafhendingu kl. 14:30 á sunnudeginum.

Keppt verður
í:

Tvenndarkeppni, tvíliðaleik karla og kvenna og í einliðaleik í meistaraflokki, 1. og 2. flokki karla og kvenna.

Dagskrá laugardaginn 6. mars:

Kl. 10:30 Tvenndarkeppni 
– úrslitaleikur kl. 12:00

Kl. 11:30 Tvíliðaleikur karla, leikið fram að
undanúrslitum

Kl. 12:30 Tvíliðaleikur kvenna, leikið fram að
undanúrslitum

Kl. 14:00 Meistaraflokkur kvenna, leikið fram að
undanúrslitum

Kl. 14:00 Meistaraflokkur karla, leikið fram að
undanúrslitum

Kl. 15:00 1. flokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum

Kl. 15:00 1. flokkur karla, leikið fram að undanúrslitum

Kl. 16:00 2. flokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum

Kl. 16:00 2. flokkur karla, leikið fram að undanúrslitum

Dagskrá sunnudaginn 7. mars:

Kl. 11:00 Undanúrslitaleikir í 1. og 2. flokki karla og
kvenna

Kl. 11:30 Úrslitaleikir í 1. og 2. flokki karla og kvenna

Kl. 12:00 Undanúrslit í tvíliðaleik karla og kvenna

Kl. 12:30 Úrslitaleikir í tvíliðaleik karla og kvenna

Kl. 13:15 Undanúrslit í meistaraflokki karla og kvenna

Kl. 14:00 Úrslitaleikir í meistaraflokki karla og kvenna

Kl. 14:30 Verðlaunaafhending

Leikinn
verður einfaldur útsláttur 3-5 lotur í öllum flokkum nema í meistaraflokki
karla og kvenna, þar verða leiknar 4-7 lotur. Keppt verður með hvítum Stiga
keppniskúlum.

Raðað verður
samkvæmt keppnisreglum BTÍ og reglugerð um Íslandsmót. Veitt verða verðlaun
fyrir 4. efstu sætin.  Skráningargjald er
kr. 2.000 í einstaklingskeppnina og kr. 3.000 fyrir parið í tvíliðaleik og
tvenndarkeppni.

Keppni á
Íslandsmótinu í borðtennis er opin öllum íslenskum ríkisborgurum og þeim
erlendu ríkisborgurum sem hafa átt búsetu og lögheimili á Íslandi í þrjú ár við
upphaf móts.  Aðeins þeir leikmenn sem
eru í 1. flokki eða meistaraflokki mega keppa í meistaraflokki.

Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 3. mars kl 18:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected]  eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma.  Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379, reikningsnúmer: 0525-26-3693

Dregið verður á skrifstofu BTÍ sama dag kl. 20:00.

Yfirdómari:  Árni
Siemsen.

Mótshaldari:  Borðtennisdeild Víkings.

Upplýsingar um Íslandsmótið má nálgast á PDF formi með því að smella hér.

Aðrar fréttir