Íslandsmót fatlaðra verður haldið 7. mars
Íslandsmót ÍF verður haldið laugardaginn 7. mars í Íþróttahúsi ÍFR, Hátúni 14.
Húsið opnar kl. 12:00 og keppni hefst kl. 13:00.
Nánari dagskrá kemur þegar skráningarfrestur er liðinn.
Leikið verður með þriggja stjörnu Butterfly kúlum.
Keppnisflokkar:
Flokkur 1 – 5
Flokkur 6 – 10
Flokkur 11 kk
Flokkur 11 kvk
Opinn flokkur kk
Opinn flokkur kvk
Tvíliðaleikur kk
Tvíliðaleikur kvk
Tvenndarleikur
Keppnisfyrikomulag
Í flokki 1-11 verður keppt í 3-5 manna riðlum þar sem 2 fara upp úr riðli.
Í opnum flokki verður dregið í töflu og beinn útsláttur.
Tvíliðaleikur verður dregið í töflu og beinn útsláttur nema séu færri en 5 lið þá er riðlakeppni.
Tvenndarleikur verður dregið í töflu og beinn útsláttur nema séu færri en 5 lið þá er riðlakeppni.
Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkur, þar sem þarf að vinna 3 lotur til að vinna leikinn.
Skráning
Skáningar sendast á [email protected], taka skal fram fullt nafn, kennitölu, félag og hvaða fötlunarflokki viðkomandi keppir í.
Skráningarfrestur er fyrir kl. 20:00 mánudaginn 2 mars.
Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi ÍFR, mánudaginn 2 mars kl. 21:00.
Þáttökugjöld
Ekkert þátttökugjald.
Mótstjórn
Hákon Atli Bjarkason, 660-3807, [email protected]
Kristján Jónasson
Yfirdómari
Helgi Þór Gunnarsson
Auglýsingaplakat: 
Bréf um mótið: Íslandsmót ÍF 26


