Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót í flokkakeppni unglinga 16.-17. mars

Íslandsmót í
flokkakeppni unglinga í borðtennis 2019 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla
helgina 16.-17. mars 2019.
Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins f. h. Borðtennissambands Íslands.

Aldursflokkar

Keppt
verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um
flokkakeppni:

  • Piltar
    og telpur fædd 2006 og síðar (13 ára og yngri)
  • Sveinar og meyjarfædd 2004-2005 (14-15 ára)
  • Drengir og stúlkur fædd 2001-2003 (16-18
    ára) 

Dagskrá

Laugardagur 16. mars

13.00  Drengir fæddir 2001-2003

13.00  Sveinar fæddir 2004-2005

Sunnudagur 17. mars

10.00  Piltar fæddir 2006 og síðar

10.00  Telpur fæddar 2006 og síðar

13.00  Meyjar fæddar 2004-2005

13.00  Stúlkur fæddar 2001-2003

Keppnisfyrirkomulag

Hverju
félagi er heimilt að tilkynna eins mörg lið til þátttöku í hvern flokk og það
óskar eftir.  Liðum skal þá raðað eftir styrkleika A, B, C o.s.frv.
Að lágmarki eru tveir leikmenn í liði. Hver keppandi má aðeins leika í einu
liði í einum flokki.

Keppt er
skv. Corbillion fyrirkomulagi: Tveir einliðaleikir (A:X, B:Y), tvíliðaleikur,
og síðan aftur tveir einliðaleikir (A:Y, B:X) ef þörf krefur. Þrjá vinninga
þarf til að vinna leik.   

Leikið
verður í riðlum og síðan er leikið upp úr riðlunum með einföldum útslætti ef
fleiri en 6 lið eru skráð í sama flokk.  Raðað
verður í riðla eftir styrkleika þeirra leikmanna sem skráðir eru í liðin skv.
nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Verðlaun
verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.

Leikið
verður með Stiga hvítum 3ja stjörnu kúlum.

Mælst er
til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Skráning og þátttökugjöld

Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 3.600 á lið.  Greiðsla leggist
inn á reikning Borðtennisdeildar KR:  Bankareikningur:
0137-26-008312, kennitala 661191-1129.  Greiðsla er staðfesting á þátttöku
og skal þátttökugjaldið greiðast um leið og skráning en í síðasta lagi fyrir
upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal
koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.

Síðasti
skráningardagur er miðvikudagurinn 13. mars
kl. 20.00
. Skráningum
skal skilað á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=F7338A7F-E3B5-4D44-BCA0-A9F334936C6C) en þar skal koma fram í hvaða
flokkum eigi að skrá liðin sem greitt hefur verið fyrir og hvaða leikmenn skipa
liðin. Ef ekki gengur að skrá lið í gegnum Tournament Software má senda
tölvupóst til mótsstjórnar fyrir lok skráningarfrests.

Skila þarf kennitölu allra keppenda
í síðasta lagi á mótsdag!

Mótstjórn

Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]

Guðrún Gestsdóttir, hs. 551 4949, [email protected]

Yfirdómari:
Nafn yfirdómara verður tilkynnt síðar.

Hlöðver
Steini Hlöðversson, gsm. 824 3738 , [email protected]

Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 14. mars kl. 18:00. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software að loknum drætti.

Bréf um mótið:

ÁMU

Aðrar fréttir