Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót í flokkakeppni unglinga verður haldið 10.-11. febrúar

Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2018 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla helgina 10.-11. febrúar 2018. Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins f. h. Borðtennissambands Íslands.

Aldursflokkar

Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um flokkakeppni:

  • Piltar og telpur fædd 2005 og síðar (13 ára og yngri)
  • Sveinar og meyjar fædd 2003-2004 (14-15 ára)
  • Drengir og stúlkur fædd 2000-2002 (16-18 ára)

Dagskrá

Laugardagur 10. febrúar

13.00  Drengir fæddir 2000-2002

13.00  Sveinar fæddir 2003-2004

Sunnudagur 11. febrúar

10.00  Piltar fæddir 2005 og síðar

10.00  Telpur fæddar 2005 og síðar

13.00  Meyjar fæddar 2003-2004

13.00  Stúlkur fæddar 2000-2002

Keppnisfyrirkomulag

Hverju félagi er heimilt að tilkynna eins mörg lið til þátttöku í hvern flokk og það óskar eftir.  Liðum skal þá raðað eftir styrkleika A, B, C o.s.frv. Að lágmarki eru tveir leikmenn í liði. Hver keppandi má aðeins leika í einu liði í einum flokki.

Keppt er skv. Corbillion fyrirkomulagi: Tveir einliðaleikir (A:X, B:Y), tvíliðaleikur, og síðan aftur tveir einliðaleikir (A:Y, B:X) ef þörf krefur. Þrjá vinninga þarf til að vinna leik.

Leikið verður í riðlum og síðan er leikið upp úr riðlunum með einföldum útslætti ef fleiri en 6 lið eru skráð í sama flokk.  Raðað verður í riðla eftir styrkleika þeirra leikmanna sem skráðir eru í liðin skv. nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.

Leikið verður með Stiga hvítum 3ja stjörnu kúlum.

Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.

Skráning og þátttökugjöld

Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 3.000 á lið.  Greiðsla leggist inn á reikning Borðtennisdeildar KR:  Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129.  Greiðsla er staðfesting á þátttöku og skal þátttökugjaldið greiðast um leið og skráning en í síðasta lagi fyrir upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.

Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 7. febrúar kl. 20.00. Skráningum skal skilað á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=49C83D4B-C831-4DD4-B6E8-2C5C0F2CB0A0 ) eða í tölvupósti til mótsstjórnar en þar skal koma fram í hvaða flokkum eigi að skrá liðin sem greitt hefur verið fyrir og hvaða leikmenn skipa liðin.

Skila þarf kennitölu allra keppenda í síðasta lagi á mótsdag!

Mótstjórn

Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]

Guðrún Gestsdóttir, hs. 551 4949, [email protected]

Magnús Stefánsson, gsm. 865 3884, [email protected]

Yfirdómarar: Kári Mímisson verður yfirdómari á laugardeginum og Hannes Guðrúnarson á sunnudeginum.

Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 8. febrúar kl. 18:00. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software að loknum drætti.

Bréf um mótið: Íslandsmót í flokkakeppni unglinga 2018

 

ÁMU

 

Aðrar fréttir