Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót í flokkakeppni unglinga verður haldið 11.-12. febrúar

Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2017 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla helgina 11.-12. febrúar 2017. Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins f. h. Borðtennissambands Íslands.

Aldursflokkar

Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. nýlegri breytingu á reglugerð um flokkakeppni:

  • Piltar og telpur fædd 2004 og síðar (13 ára og yngri)
  • Sveinar og meyjar fædd 2002-2003 (14-15 ára)
  • Drengir og stúlkur fædd 1999-2001 (16-18 ára)

Dagskrá

Laugardagur 11. febrúar

  • 13.30 Drengir fæddir 1999-2001 
  • 13.30 Stúlkur fæddar 1999-2001
  • 16.00 Sveinar fæddir 2002-2003
  • 16.00 Meyjar fæddar 2002-2003

Sunnudagur 12. febrúar

  • 10.00 Piltar fæddir 2004 og síðar
  • 10.00 Telpur fæddar 2004 og síðar

Skráning og þátttökugjöld

Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 2.500 á lið.  Greiðsla leggist inn á reikning Borðtennisdeildar KR: Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129.  Greiðsla er staðfesting á þátttöku og skal þátttökugjaldið greiðast um leið og skráning en í síðasta lagi fyrir upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.

Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 8. febrúar kl. 20.00. Skráningum skal skilað á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=3E2DE109-B9AC-4A45-8135-5BBD8189B274 ) eða í tölvupósti til mótsstjórnar en þar skal koma fram í hvaða flokkum eigi að skrá liðin sem greitt hefur verið fyrir.

Skila þarf kennitölu allra keppenda í síðasta lagi á mótsdag!

Mótstjórn

Bréf um mótið með öllum upplýsingum um mótið: Íslandsmót í flokkakeppni unglinga 2017

 

ÁMU

Aðrar fréttir