Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót öldunga verður 10. maí í Snælandsskóla

Íslandsmót öldunga í borðtennis 2025 fer fram í Íþróttahúsi Snælandsskóla (athugið breytt staðsetning)  í Kópavogi, laugardaginn 10. maí 2025. Mótið er í umsjón Borðtennissambands Íslands og Borðtennisdeildar HK.

Leikið verður í fjórum aldursflokkum karla og kvenna í einliðaleik, fjórum aldursflokkum í tvíliðaleik og einum aldursflokki í tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót.

Keppni hefst kl. 11 á keppni í tvenndarleik. Keppni í tvíliðaleik byrjar kl. 12.30 og í einliðaleik kl. 14.

Yfirdómari: Þorbergur Freyr Pálmarsson

Skráning og greiðsla keppnisgjalda fer fram í gegnum skráningar og greiðsluforrit BTÍ – ATH: SKRÁNINGU ER LOKIÐ

Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 6. maí kl. 22.

Sjá nánar í meðfylgjandi skjali: Íslandsmót öldunga í borðtennis 2025

Á forsíðunni má sjá verðlaunahafa í tvenndarleik á Íslandsmóti öldunga 2024.

Aðrar fréttir