Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót öldunga verður haldið 20. febrúar

Íslandsmót öldunga í borðtennis
2021 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla, Neshaga 3, laugardaginn 21. febrúar 2021.
Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR.

Leikið verður í fjórum
aldursflokkum karla og kvenna í einliðaleik, fjórum aldursflokkum í tvíliðaleik
og einum aldursflokki í tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands
Íslands um Íslandsmót.

Dagskrá

13.15 Tvenndarkeppni  40 ára og eldri, fædd 1981 og fyrr

14.15 Tvíliðaleikur karla 40-49
ára, fæddir 1972-1981

14.15 Tvíliðaleikur kvenna
40-49 ára, fæddar 1972-1981

14.15 Tvíliðaleikur karla 50-59
ára, fæddir 1962-1971

14.15 Tvíliðaleikur kvenna 50-59
ára, fæddar 1962-1971

14.15 Tvíliðaleikur karla 60-69
ára, fæddir 1952-1961

14.15 Tvíliðaleikur kvenna
60-69 ára, fæddar 1952-1961

14.15 Tvíliðaleikur karla 70
ára og eldri, fæddir 1951 og fyrr

14.15 Tvíliðaleikur kvenna 70
ára og eldri, fæddar 1951 og fyrr

15.15 Einliðaleikur karla 40-49
ára, fæddir 1972-1981

15.15 Einliðaleikur kvenna
40-49 ára, fæddar 1972-1981

15.15 Einliðaleikur karla 50-59
ára, fæddir 1962-1971

15.15 Einliðaleikur kvenna
50-59 ára, fæddar 1962-1971

15.15 Einliðaleikur karla 60-69
ára, fæddir 1952-1961

15.15 Einliðaleikur kvenna 60-69
ára, fæddar 1952-1961

15.15 Einliðaleikur karla 70
ára og eldri, fæddir 1951 og fyrr

15.15 Einliðaleikur kvenna 70
ára og eldri, fæddar 1951 og fyrr

Verðlaunaafhending verður að loknum
úrslitaleikjum.

Fyrirkomulag keppni

Keppt verður í riðlum í
einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik
og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti skv. reglugerð um Íslandsmót.
Þó verður leikið í riðli ef þrjú pör eru skráð til leiks skv. sömu reglugerð. Þrjár
unnar lotur þarf til að vinna leik.

Skv. reglugerð um Íslandsmót er lágmarksþátttaka í hverjum
aldursflokki tveir í einliðaleik og tvö pör í tvíliðaleik og tvenndarleik. Þeir
flokkar sem ekki uppfylla þessi skilyrði falla niður og keppendur flytjast í
næsta aldursflokk fyrir neðan. Ekki er veittur Íslandsmeistaratitill í flokki
sem fellur niður með þessum hætti.

Við röðun í mótið verður farið
eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Leikið verður með hvítum
þriggja stjörnu Stiga kúlum.

Mælst er til þess að leikmenn
leiki í búningum síns félags.

Verðlaun verða veitt fyrir fjögur
efstu sætin í öllum flokkum.

Þátttökugjöld og skráning

Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn
17. febrúar kl. 22.

Mælst er til þess að skráningum
sé skilað á vef Tournament Software á slóðinni https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament?id=A76B201D-651C-40CD-9DF4-6EFE4E0B6289.
Leiðbeiningar
um skráningu í gegnum Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ, www.bordtennis.is. Ef
vandkvæði eru með skráningu á vefnum má einnig skila skráningu til mótsstjórnar.

Kennitölur skulu fylgja
öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.

Samkvæmt reglugerð er þátttaka
á Íslandsmótum aðeins heimil íslenskum ríkisborgurum og erlendum
ríkisborgururum sem hafa verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár
þegar mót fer fram. 

Þátttökugjald er 2.000 kr. í
einliðaleik og 2.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr.
á mann). Hægt er að greiða þátttökugjald inn á reikning Borðtennisdeildar
KR:  Bankareikningur: 0137-26-008312,
kennitala 661191-1129. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/par er verið
að greiða. Einnig er hægt að greiða á staðnum en ekki verður posi á mótsstað.

Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi
Hagaskóla fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20:00.

Mótstjórn

Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]

Hlöðver Steini Hlöðversson, gsm. 8243738,
[email protected]

Skúli
Gunnarsson, gsm. 8452585, [email protected]

Yfirdómari: Ellert Kristján Georgsson.

Bréf um mótið:

Aðrar fréttir