Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót öldunga verður haldið 24. febrúar

Íslandsmót öldunga í borðtennis 2024 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla, Neshaga 3, laugardaginn 24. febrúar 2024. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR.
Leikið verður í fjórum aldursflokkum karla og kvenna í einliðaleik, fjórum aldursflokkum í tvíliðaleik og einum aldursflokki í tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót.

Dagskrá

13.30 Tvenndarkeppni 40 ára og eldri, fædd 1984 og fyrr

14.30 Tvíliðaleikur karla 40-49 ára, fæddir 1975-1984
14.30 Tvíliðaleikur kvenna 40-49 ára, fæddar 1975-1984
14.30 Tvíliðaleikur karla 50-59 ára, fæddir 1965-1974
14.30 Tvíliðaleikur kvenna 50-59 ára, fæddar 1965-1974
14.30 Tvíliðaleikur karla 60-69 ára, fæddir 1955-1964
14.30 Tvíliðaleikur kvenna 60-69 ára, fæddar 1955-1964
14.30 Tvíliðaleikur karla 70 ára og eldri, fæddir 1954 og fyrr
14.30 Tvíliðaleikur kvenna 70 ára og eldri, fæddar 1954 og fyrr

15.30 Einliðaleikur karla 40-49 ára, fæddir 1975-1984
15.30 Einliðaleikur kvenna 40-49 ára, fæddar 1975-1984
15.30 Einliðaleikur karla 50-59 ára, fæddir 1965-1974
15.30 Einliðaleikur kvenna 50-59 ára, fæddar 1965-1974
15.30 Einliðaleikur karla 60-69 ára, fæddir 1955-1964
15.30 Einliðaleikur kvenna 60-69 ára, fæddar 1955-1964
15.30 Einliðaleikur karla 70 ára og eldri, fæddir 1954 og fyrr
15.30 Einliðaleikur kvenna 70 ára og eldri, fæddar 1954 og fyrr

Verðlaunaafhending verður að loknum úrslitaleikjum.

Fyrirkomulag keppni
Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti skv. reglugerð um Íslandsmót. Þó verður leikið í riðli ef þrjú pör eru skráð til leiks skv. sömu reglugerð. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik.

Skv. reglugerð um Íslandsmót er lágmarksþátttaka í hverjum aldursflokki tveir í einliðaleik og tvö pör í tvíliðaleik og tvenndarleik. Þeir flokkar sem ekki uppfylla þessi skilyrði falla niður og keppendur flytjast í næsta aldursflokk fyrir neðan. Ekki er veittur Íslandsmeistaratitill í flokki sem fellur niður með þessum hætti.

Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ, þ.e. listanum frá 1. febrúar 2024.
Leikið verður með hvítum þriggja stjörnu Stiga kúlum.
Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.

Þátttökugjöld og skráning
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 21. febrúar kl. 22.
Mælst er til þess að skráningum sé skilað á vef Tournament Software á slóðinni https://www.tournamentsoftware.com/tournament/7041DD1C-C174-43BC-ABC5-7CA98371139F. Leiðbeiningar um skráningu í gegnum Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ og einnig neðst í fréttinni. Ef vandkvæði eru með skráningu á vefnum má einnig skila skráningu til mótsstjórnar.
Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.
Samkvæmt reglugerð er þátttaka á Íslandsmótum aðeins heimil íslenskum ríkisborgurum og erlendum ríkisborgururum sem hafa verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram.

Þátttökugjald er 3.000 kr. í einliðaleik og 3.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.500 kr. á mann). Hægt er að greiða þátttökugjald inn á reikning Borðtennisdeildar KR: Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/par er verið að greiða. Einnig er hægt að greiða á staðnum en ekki verður posi á mótsstað.
Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 22. febrúar kl. 20:00.

Mótstjórn
Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]
Hlöðver Steini Hlöðversson, gsm. 8243738, [email protected]
Skúli Gunnarsson, gsm. 8452585, [email protected]

Yfirdómari: Elvar Kjartansson.

Öðlingahópur Borðtennisdeildar KR hefur tekið frá borð á Rauða ljóninu að móti loknu og hvetur keppendur til að mæta og skemmta sér saman.

Íslandsmót öldunga í borðtennis 2024

Aðgangur að skráningarkerfi Tournament Software uppfært

Skjal með leiðbeiningum um skráningu í gegnum Tournament Software uppfært 19.2.2024.

Aðrar fréttir