Íslandsmót unglinga 2022
Íslandsmót unglinga í borðtennis 2022
Íslandsmót unglinga í borðtennis 2022 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól 19.-20. mars 2022. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR og Borðtennisdeildar BH. Auglýsingu um mótið á pdf sniði er að finna hér.
Leikið verður í fjórum aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik og þremur aldursflokkum í tvíliðaleik og tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót.
Laugardaginn 19. mars verður leikið til úrslita í tvenndarkeppni og keppt í riðlum í einliðaleik. Leikið verður upp úr riðlum fram að undanúrslitum.
Sunnudaginn 20. mars verður leikið í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik. Dagskrá lýkur með sameiginlegri verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka.
Dagskrá
Laugardagur 19. mars 2022
Setningarathöfn kl. 10
Tvenndarkeppni til úrslita:
10.15 Tvenndarkeppni 13 ára og yngri, fædd 2009 og síðar
10.15 Tvenndarkeppni 14-15 ára, fædd 2007-2008
13.00 Tvenndarkeppni 16-18 ára, fædd 2004-2006
Einliðaleikur að undanúrslitum:
10.30 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2011 og síðar
10.30 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2011 og síðar
11.00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2009-2010
12.00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2009-2010
13.00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2007-2008
13.00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2007-2008
14.30 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2004-2006
15.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2004-2006
Sunnudagur 20. mars
Tvíliðaleikur:
10.00 Tvíliðaleikur pilta -13 ára, fæddir 2009 og síðar
10.00 Tvíliðaleikur telpna -13 ára, fæddar 2009 og síðar
10.00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2004-2006
11.00 Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2004-2006
11.00 Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2007-2008
11.00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2007-2008
Einliðaleikur undanúrslit og úrslit:
12.30 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2011 og síðar
12.30 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2011 og síðar
12.30 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2009-2010
13.15 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2009-2010
13.15 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2007-2008
13.15 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2007-2008
14.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2004-2006
14.00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2004-2006
Verðlaunaafhending í öllum flokkum verður sunnudaginn 20. mars að loknum úrslitaleikjum.
Fyrirkomulag keppni
Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti nema ef þrjú pör eru skráð til leiks, þá er keppti í riðli, skv. reglugerð um Íslandsmót. Ef eingöngu tveir keppendur eru skráðir í flokk í einliðaleik fer úrslitaleikurinn fram sunnudaginn 20. mars. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ. Leikið verður á Butterfly borðum með hvítum þriggja stjörnu Stiga plastkúlum. Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.
Foreldrar iðkenda verða með veitingasölu á svæðinu. Keppendum og áhorfendum er bent á reglur BTÍ um iðkun borðtennis á tímum COVID-19 faraldursins.
Þátttökugjöld og skráning
Þátttökugjald er 3.000 kr. í einliðaleik og 2.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr. á mann). Mælst er til þess að keppendur greiði þátttökugjöld rafrænt á bankareikning nr. 0137-26-008312, kennitala 661191-1129 og sendi kvittun með nafni þátttakanda á netfangið [email protected].
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 16. mars kl. 22.
Skráningum skal skilað til mótstjórnar með skráningu á vef Tournament Software hér. Leiðbeiningar um skráningu í gegnum Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ. Einnig má skila skráningu í tölvupósti beint til mótsstjórnar, best að það sé gert fyrir félög eða æfingahópa í heild í Excel skjali, sem sent er til formanna og þjálfara. Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.
Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 17. mars kl. 20:00. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software að því loknu.
Samkvæmt keppnisreglum mega erlendir ríkisborgarar keppa á Íslandsmóti enda hafi þeir verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram. Viðkomandi einstaklingur verður að vera í félagi innan BTÍ.
Mótstjórn
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, gsm. 868 68 73, [email protected]
Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]
Hlöðver Steini Hlöðversson, gsm. 824-3738, [email protected]
Ingimar Ingimarsson, gsm. 861-8458, [email protected]
Jóhannes Bjarki Tómasson, gsm. 845-6233, [email protected]
Pétur Gunnarsson, gsm. 662 3949, [email protected]
Skúli Gunnarsson, gsm. 845 25 85, [email protected]
Tómas Ingi Shelton, gsm. 662-4196, [email protected]
Yfirdómari: Hannes Guðrúnarson.
Borðtennissamband Íslands greiðir landsdómurum 500 kr. fyrir hvern leik sem þeir dæma á mótinu. Landsdómarar eru því hvattir til að gefa sig fram við mótsstjórn til að falast eftir dómarahlutverki.
Fyrir hönd Borðtennisdeildar KR,
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir