Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót unglinga 2022

Íslandsmót unglinga í borðtennis 2022

Íslandsmót unglinga í borðtennis 2022 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól 19.-20. mars 2022. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR og Borðtennisdeildar BH. Auglýsingu um mótið á pdf sniði er að finna hér.

Leikið verður í fjórum aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik og þremur aldursflokkum í tvíliðaleik og tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót. 

Laugardaginn 19. mars verður leikið til úrslita í tvenndarkeppni og keppt í riðlum í einliðaleik. Leikið verður upp úr riðlum fram að undanúrslitum. 

Sunnudaginn 20. mars verður leikið í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik. Dagskrá lýkur með sameiginlegri verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka. 

Dagskrá 

Laugardagur 19. mars 2022

Setningarathöfn kl. 10

Tvenndarkeppni til úrslita: 

10.15 Tvenndarkeppni 13 ára og yngri, fædd 2009 og síðar 

10.15 Tvenndarkeppni 14-15 ára, fædd 2007-2008

13.00 Tvenndarkeppni 16-18 ára, fædd 2004-2006

Einliðaleikur að undanúrslitum: 

10.30 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2011 og síðar 

10.30 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2011 og síðar 

11.00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2009-2010 

12.00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2009-2010

13.00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2007-2008 

13.00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2007-2008

14.30 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2004-2006

15.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2004-2006

Sunnudagur 20. mars

Tvíliðaleikur: 

10.00 Tvíliðaleikur pilta -13 ára, fæddir 2009 og síðar 

10.00 Tvíliðaleikur telpna -13 ára, fæddar 2009 og síðar 

10.00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2004-2006

11.00 Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2004-2006

11.00 Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2007-2008

11.00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2007-2008

Einliðaleikur undanúrslit og úrslit:

12.30 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2011 og síðar 

12.30 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2011 og síðar 

12.30 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2009-2010 

13.15 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2009-2010 

13.15 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2007-2008

13.15 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2007-2008

14.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2004-2006

14.00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2004-2006

Verðlaunaafhending í öllum flokkum verður sunnudaginn 20. mars að loknum úrslitaleikjum. 

Fyrirkomulag keppni 

Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti nema ef þrjú pör eru skráð til leiks, þá er keppti í riðli, skv. reglugerð um Íslandsmót. Ef eingöngu tveir keppendur eru skráðir í flokk í einliðaleik fer úrslitaleikurinn fram sunnudaginn 20. mars. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ. Leikið verður á Butterfly borðum með hvítum þriggja stjörnu Stiga plastkúlum. Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum. 

Foreldrar iðkenda verða með veitingasölu á svæðinu. Keppendum og áhorfendum er bent á reglur BTÍ um iðkun borðtennis á tímum COVID-19 faraldursins.

Þátttökugjöld og skráning 

Þátttökugjald er 3.000 kr. í einliðaleik og 2.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr. á mann). Mælst er til þess að keppendur greiði þátttökugjöld rafrænt á bankareikning nr. 0137-26-008312, kennitala 661191-1129 og sendi kvittun með nafni þátttakanda á netfangið [email protected].

Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 16. mars kl. 22. 

Skráningum skal skilað til mótstjórnar með skráningu á vef Tournament Software hér. Leiðbeiningar um skráningu í gegnum Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ. Einnig má skila skráningu í tölvupósti beint til mótsstjórnar, best að það sé gert fyrir félög eða æfingahópa í heild í Excel skjali, sem sent er til formanna og þjálfara. Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.

Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla fimmtudaginn 17. mars kl. 20:00. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software að því loknu.

Samkvæmt keppnisreglum mega erlendir ríkisborgarar keppa á Íslandsmóti enda hafi þeir verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram. Viðkomandi einstaklingur verður að vera í félagi innan BTÍ. 

Mótstjórn 

Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, gsm. 868 68 73, [email protected]

Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]  

Hlöðver Steini Hlöðversson, gsm. 824-3738, [email protected]

Ingimar Ingimarsson, gsm. 861-8458, [email protected]

Jóhannes Bjarki Tómasson, gsm. 845-6233, [email protected]

Pétur Gunnarsson, gsm. 662 3949, [email protected]

Skúli Gunnarsson, gsm. 845 25 85, [email protected]

Tómas Ingi Shelton, gsm. 662-4196, [email protected]

Yfirdómari: Hannes Guðrúnarson. 

Borðtennissamband Íslands greiðir landsdómurum 500 kr. fyrir hvern leik sem þeir dæma á mótinu. Landsdómarar eru því hvattir til að gefa sig fram við mótsstjórn til að falast eftir dómarahlutverki.

Fyrir hönd Borðtennisdeildar KR,

Auður Tinna Aðalbjarnardóttir

Aðrar fréttir