Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót unglinga fer fram 10.-11. október

Íslandsmót unglinga í
borðtennis 2020 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól 10.-11. október 2020 en
mótinu var frestað frá því mars vegna COVID-19 faraldursins. Mótið er í umsjón
Borðtennisdeildar KR.

Leikið verður í fjórum
aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik og þremur aldursflokkum í
tvíliðaleik og tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um
Íslandsmót.

Laugardaginn 10. október verður
leikið til úrslita í tvenndarkeppni og keppt í riðlum í einliðaleik. Leikið
verður upp úr riðlum fram að undanúrslitum.

Sunnudaginn 11. október verður
leikið í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik.

Dagskrá lýkur með sameiginlegri
verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka.

Dagskrá

Laugardagur 10. október

Setningarathöfn
kl. 10

Tvenndarkeppni til úrslita:

  • 10.15 Tvenndarkeppni 13 ára og yngri, fædd 2007 og síðar
  • 10.15 Tvenndarkeppni 14-15 ára, fædd 2005-2006
  • 13.00 Tvenndarkeppni 16-18 ára, fædd 2002-2004

Einliðaleikur að
undanúrslitum:

  • 10.30 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2009 og síðar
  • 10.30 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2009 og síðar
  • 11.00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2007-2008
  • 12.00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2007-2008
  • 13.00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2005-2006
  • 13.00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2005-2006
  • 14.30 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2002-2004
  • 15.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2002-2004

Sunnudagur 11. október

Tvíliðaleikur:

  • 10.00 Tvíliðaleikur pilta -13 ára, fæddir 2007 og síðar
  • 10.00 Tvíliðaleikur telpna -13 ára, fæddar 2007 og síðar
  • 10.00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2002-2004
  • 11.00 Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2002-2004
  • 11.00 Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2005-2006
  • 11.00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2005-2006

Einliðaleikur undanúrslit og úrslit:

  • 12.30 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2009 og síðar
  • 12.30 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2009 og síðar
  • 12.30 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2007-2008
  • 13.15 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2007-2008
  • 13.15 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2005-2006
  • 13.15 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2005-2006
  • 14.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 2002-2004
  • 14.00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 2002-2004

Verðlaunaafhending í öllum
flokkum verður sunnudaginn 11. október að loknum úrslitaleikjum.

Fyrirkomulag keppni

Keppt verður í riðlum í
einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik
og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti nema ef þrjú pör eru skráð
til leiks, þá er keppt í riðli, skv. reglugerð um Íslandsmót. Ef eingöngu tveir
keppendur eru skráðir í flokk í einliðaleik fer úrslitaleikurinn fram
sunnudaginn 11. október. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Við röðun í
mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ. Leikið verður á Butterfly
borðum með hvítum þriggja stjörnu Stiga plastkúlum. Mælst er til þess að
leikmenn leiki í búningum síns félags. Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu
sætin í öllum flokkum.

Keppendum og áhorfendum er bent
á reglur BTÍ um iðkun borðtennis á tímum COVID-19 faraldursins.

Þátttökugjöld og skráning

Þátttökugjald er 2.500 kr. í
einliðaleik og 2.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr.
á mann). Mælst er til þess að keppendur greiði þátttökugjöld rafrænt á
bankareikning nr. 0137-26-008312, kennitala 661191-1129.

Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 6. október kl. 22.

Skráningum skal skilað til
mótstjórnar með skráningu á vef Tournament Software á slóðinni https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament?id=71249E35-44E9-4B8C-B19E-B64237CC7442. Leiðbeiningar um skráningu í gegnum
Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ, www.bordtennis.is. Einnig
má skila skráningu í tölvupósti beint til mótsstjórnar, best að það sé gert
fyrir félög eða æfingahópa í heild í Excel skjali, sem sent er til formanna og
þjálfara.

Kennitölur skulu fylgja
öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.

Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla miðvikudaginn 7. október kl. 20:00. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software að loknum drætti.

Samkvæmt keppnisreglum mega erlendir ríkisborgarar keppa á Íslandsmóti enda hafi þeir verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram. Viðkomandi einstaklingur verður að vera í félagi innan BTÍ.

Mótstjórn

Yfirdómarar: Finnur Hrafn
Jónsson og Hannes Guðrúnarson.

Borðtennissamband Íslands greiðir landsdómurum 500 kr. fyrir hvern leik sem þeir dæma á mótinu. Landsdómarar eru því hvattir til að gefa sig fram við mótsstjórn til að falast eftir dómarastarfi.

Bréf um mótið:

Aðrar fréttir