Íslandsmót unglinga fer fram 5.-6. mars 2016
Íslandsmót unglinga í borðtennis 2016 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól 5.-6. mars 2016. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR.
Leikið verður í fimm aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik, fjórum aldursflokkum í tvíliðaleik og þremur aldursflokkum í tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um Íslandsmót.
Laugardaginn 5. mars verður leikið í tvenndarkeppni og keppt í riðlum í einliðaleik. Leikið verður upp úr riðlum fram að undanúrslitum.
Sunnudaginn 6. mars verður leikið í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik.
Dagskrá lýkur með sameiginlegri verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka.
Dagskrá
Laugardagur 5. mars
Tvenndarkeppni:
11.00 Tvenndarkeppni -15 ára, fædd 2001 og síðar
15.00 Tvenndarkeppni 16-18 ára, fædd 1998-2000
15.00 Tvenndarkeppni 19-21 árs, fædd 1995-1997
Einliðaleikur að undanúrslitum:
11.00 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2005 og síðar
12.00 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2005 og síðar
12.00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2003-2004
13.00 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2003-2004
14.00 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2001-2002
14.00 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2001-2002
15.30 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 1998-2000
16.00 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 1998-2000
16.00 Einliðaleikur ungmenna drengja 19-21 árs, fæddir 1995-1997
16.00 Einliðaleikur ungmenna stúlkna 19-21 árs, fæddar 1995-1997
Sunnudagur 6. mars
Tvíliðaleikur:
11.00 Tvíliðaleikur pilta -13 ára, fæddir 2003 og síðar
11.00 Tvíliðaleikur telpna -13 ára, fæddar 2003 og síðar
11.00 Tvíliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 1998-2000
11.00 Tvíliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 1998-2000
12.00 Tvíliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2001-2002
12.00 Tvíliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2001-2002
12.00 Tvíliðaleikur ungmenna drengja 19-21 árs, fæddir 1995-1997
12.00 Tvíliðaleikur ungmenna stúlkna 19-21 árs, fæddar 1995-1997
Einliðaleikur undanúrslit og úrslit:
13.00 Einliðaleikur hnokka -11 ára, fæddir 2005 og síðar
13.00 Einliðaleikur táta -11 ára, fæddar 2005 og síðar
13.00 Einliðaleikur telpna 12-13 ára, fæddar 2003-2004
13.30 Einliðaleikur pilta 12-13 ára, fæddir 2003-2004
13.30 Einliðaleikur sveina 14-15 ára, fæddir 2001-2002
13.30 Einliðaleikur meyja 14-15 ára, fæddar 2001-2002
13.30 Einliðaleikur stúlkna 16-18 ára, fæddar 1998-2000
14.00 Einliðaleikur drengja 16-18 ára, fæddir 1998-2000
14.00 Einliðaleikur ungmenna drengja 19-21 árs, fæddir 1995-1997
14.00 Einliðaleikur ungmenna stúlkna 19-21 árs, fæddar 1995-1997
Verðlaunaafhending í öllum flokkum verður sunnudaginn 6. mars að loknum úrslitaleikjum
Fyrirkomulag keppni
Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti skv. reglugerð um Íslandsmót. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik. Ef eingöngu tveir keppendur eru skráðir í flokk í einliðaleik fer úrslitaleikurinn fram sunnudaginn 6. mars.
Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Leikið verður á Stiga Expert borðum með hvítum þriggja stjörnu Stiga plastkúlum.
Mælst er til þess að leikmenn leiki í búningum síns félags.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í öllum flokkum.
Þátttökugjöld og skráning
Þátttökugjald er 2.000 kr. í einliðaleik og 2.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr. á mann) samkvæmt ákvörðun stjórnar BTÍ.
Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 1. mars kl. 20.
Skráningum skal skilað til mótstjórnar með skráningu á vef Tournament Software á slóðinni http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=D49054D2-F97D-48F4-93AF-61992908F782. Leiðbeiningar um skráningu í gegnum Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ, www.bordtennis.is. Ef vandkvæði eru með skráningu á vefnum má einnig skila skráningu til mótsstjórnar.
Kennitölur skulu fylgja öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.
Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla miðvikudaginn 2. mars kl. 20:00.
Samkvæmt reglugerð er þátttaka á Íslandsmótum aðeins heimil íslenskum ríkisborgurum og erlendum ríkisborgururum sem hafa verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í fimm ár þegar mót fer fram.
Mótstjórn
Aldís Rún Lárusdóttir, gsm. 665 6330, [email protected]
Ásta M. Urbancic, gsm. 895 96 93, [email protected]
Kristján Viðar Haraldsson, gsm. 820 0007 , [email protected]
Nöfn yfirdómara verða tilkynnt fljótlega.
Fyrir hönd Borðtennisdeildar KR
Ásta M. Urbancic
Bréf um mótið: Íslandsmót unglinga í borðtennis 2016