Íslandsmót unglinga í borðtennis 16.-17. mars 2013
Íslandsmót unglinga í borðtennis 2013 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól helgina 16.-17. mars.
Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins.
Aldursflokkar
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna:
Hnokkar og tátur fædd 2002 og síðar (11 ára og yngri)
Piltar og telpur fædd 2000-2001 (12-13 ára)
Sveinar og meyjar fædd 1998-1999 (14-15 ára)
Drengir og stúlkur fædd 1995-1997 (16-18 ára)
Ungmenni drengja og stúlkna fædd 1992-1994 (19-21 árs )
Nánari upplýsingar eru í meðfylgjandi bréfi: Íslandsmót unglinga í borðtennis 2013
ÁMU