Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmót unglinga verður ekki 28.-29. mars

Viðbót við eldri frétt, uppfært 18.3. Unnið er að því að finna nýja dagsetningu í samráði við félagið sem heldur mótið. Verður tilkynnt um nýja dagsetningu strax og hún liggur fyrir en það ræðst af ákvörðunum almannavarna.

———————————————————————————————————

Íslandsmót unglinga í borðtennis 2020 fer fram í KR-heimilinu við Frostaskjól 28.-29. mars 2020. Mótið er í umsjón Borðtennisdeildar KR.

Leikið verður í fjórum
aldursflokkum drengja og stúlkna í einliðaleik og þremur aldursflokkum í
tvíliðaleik og tvenndarkeppni sbr. reglugerð Borðtennissambands Íslands um
Íslandsmót.

Laugardaginn 28. mars verður
leikið til úrslita í tvenndarkeppni og keppt í riðlum í einliðaleik. Leikið
verður upp úr riðlum fram að undanúrslitum.

Sunnudaginn 29. mars verður
leikið í tvíliðaleik og til úrslita í einliðaleik.

Dagskrá lýkur með sameiginlegri
verðlaunaafhendingu fyrir alla flokka.

Veitingar verða seldar á
staðnum.

Dagskrá

Laugardagur 28. mars

Tvenndarkeppni til úrslita:

10.00 Tvenndarkeppni 13 ára og
yngri, fædd 2007 og síðar

10.00 Tvenndarkeppni 14-15 ára,
fædd 2005-2006

13.00 Tvenndarkeppni 16-18 ára,
fædd 2002-2004

Einliðaleikur að undanúrslitum:

10.30 Einliðaleikur hnokka -11
ára, fæddir 2009 og síðar

10.30 Einliðaleikur táta -11
ára, fæddar 2009 og síðar

11.00 Einliðaleikur telpna
12-13 ára, fæddar 2007-2008

12.00 Einliðaleikur pilta 12-13
ára, fæddir 2007-2008

13.00 Einliðaleikur sveina
14-15 ára, fæddir 2005-2006

13.00 Einliðaleikur meyja 14-15
ára, fæddar 2005-2006

14.30 Einliðaleikur drengja
16-18 ára, fæddir 2002-2004

15.00 Einliðaleikur stúlkna
16-18 ára, fæddar 2002-2004

Sunnudagur 29. mars

Tvíliðaleikur:

10.00 Tvíliðaleikur pilta -13
ára, fæddir 2007 og síðar

10.00 Tvíliðaleikur telpna -13 ára,
fæddar 2007 og síðar

10.00 Tvíliðaleikur drengja
16-18 ára, fæddir 2002-2004

11.00 Tvíliðaleikur stúlkna
16-18 ára, fæddar 2002-2004

11.00 Tvíliðaleikur sveina
14-15 ára, fæddir 2005-2006

11.00 Tvíliðaleikur meyja 14-15
ára, fæddar 2005-2006

Einliðaleikur undanúrslit og úrslit:

12.30 Einliðaleikur hnokka -11
ára, fæddir 2009 og síðar

12.30 Einliðaleikur táta -11
ára, fæddar 2009 og síðar

12.30 Einliðaleikur telpna
12-13 ára, fæddar 2007-2008

13.15 Einliðaleikur pilta 12-13
ára, fæddir 2007-2008

13.15 Einliðaleikur sveina 14-15
ára, fæddir 2005-2006

13.15 Einliðaleikur meyja 14-15
ára, fæddar 2005-2006

14.00 Einliðaleikur stúlkna
16-18 ára, fæddar 2002-2004

14.00 Einliðaleikur drengja
16-18 ára, fæddir 2002-2004

Verðlaunaafhending í öllum flokkum
verður sunnudaginn 29. mars að loknum úrslitaleikjum

Fyrirkomulag keppni

Keppt verður í riðlum í einliðaleik og síðan leikið upp úr riðlum með einföldum útslætti. Í tvíliðaleik og tvenndarkeppni er leikið með einföldum útslætti nema ef þrjú pör eru skráð til leiks, þá er keppti í riðli, skv. reglugerð um Íslandsmót. Ef eingöngu tveir keppendur eru skráðir í flokk í einliðaleik fer úrslitaleikurinn fram sunnudaginn 29. mars. Þrjár unnar lotur þarf til að vinna leik.

Við röðun í mótið verður farið eftir nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Leikið verður á Butterfly
borðum með hvítum þriggja stjörnu Stiga plastkúlum.

Mælst er til þess að leikmenn
leiki í búningum síns félags.

Verðlaun verða veitt fyrir fjögur
efstu sætin í öllum flokkum.

Þátttökugjöld og skráning

Þátttökugjald er 3.000 kr. í
einliðaleik og 2.000 kr. fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni (1.000 kr.
á mann). Allir keppendur fá bol frá BTÍ til eignar.

Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 24. mars kl. 22.

Skráningum skal skilað til
mótstjórnar með skráningu á vef Tournament Software á slóðinni https://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament?id=D9CD4484-B7E8-4FE1-B374-8A4CB2D8E960.
Leiðbeiningar
um skráningu í gegnum Tournament Software má finna á vefsíðu BTÍ, www.bordtennis.is. Einnig
má skila skráningu í tölvupósti beint til mótsstjórnar, best að það sé gert
fyrir félög eða æfingahópa í heild í Excel skjali, sem sent er til formanna og
þjálfara.

Kennitölur skulu fylgja
öllum skráningum í samræmi við keppnisreglur BTÍ.

Dregið verður í mótið í Íþróttahúsi
Hagaskóla miðvikudaginn 25. mars kl. 20:00. Drátturinn verður birtur á
vef Tournament Software að loknum drætti.

Samkvæmt keppnisreglum mega erlendir ríkisborgarar keppa á Íslandsmóti enda hafi þeir verið búsettir og átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár þegar mót fer fram. Viðkomandi einstaklingur verður að vera í félagi innan BTÍ.

Mótstjórn

Yfirdómarar: Finnur Hrafn Jónsson og Hannes Guðrúnarson.

Bréf um mótið:

Aðrar fréttir