Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmótið 2018 3.-4. mars 2018

 

ÍSLANDSMÓTIÐ í borðtennis fer fram í TBR – Íþróttahúsinu við Gnoðarvog helgina 3.–4. mars 2018. Mótið hefst á laugardeginum kl.11 og lýkur með verðlaunaafhendingu kl. 15:00 á sunnudeginum.

Leikið verður í eftirtöldum flokkum:

  • Tvíliðaleikur og tvenndarkeppni karla og kvenna og
  • í einliðaleik í meistaraflokki, 1. og 2. flokki karla og kvenna.

Dagskrá laugardaginn 3. mars:

  • 11:00 Tvenndarkeppni – úrslitaleikur kl. 12:30
  • 12:00 Tvíliðaleikur karla, leikið fram að undanúrslitum
  • 13:00 Tvíliðaleikur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
  • 14:00 Meistaraflokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
  • 14:00 Meistaraflokkur karla, leikið fram að undanúrslitum
  • 15:00 1. flokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
  • 15:00 1. flokkur karla, leikið fram að undanúrslitum
  • 16:00 2. flokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
  • 16:00 2. flokkur karla, leikið fram að undanúrslitum

Dagskrá sunnudaginn 4. mars:

  • 11:30 Undanúrslit í 1. og 2. flokki karla og kvenna
  • 12:00 Úrslitaleikir í 1. og 2. flokki karla og kvenna
  • 12:30 Undanúrslit í tvíliðaleik karla og kvenna
  • 13:00 Úrslitaleikir í tvíliðaleik karla og kvenna
  • 13:30 Undanúrslit í meistaraflokki karla og kvenna
  • 14:30 Úrslitaleikir í meistaraflokki karla og kvenna
  • 15:00 Verðlaunaafhending

Leikinn verður einfaldur útsláttur 3-5 lotur í öllum flokkum nema í meistaraflokki karla og kvenna, þar verða leiknar 4-7 lotur.

Raðað verður samkvæmt keppnisreglum BTÍ og reglugerð um Íslandsmót. Veitt verða verðlaun fyrir 4 efstu sætin.

Skráningargjald er kr.1.500 í einstaklingskeppnina og kr. 3.000 fyrir parið í tvíliðaleik og tvenndarkeppni.

Síðasti skráningardagur er miðvikudaginn 28. febrúar kl 18:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða síma 8940040 fyrir þann tíma.

Dregið verður á skrifstofu BTÍ sama dag kl. 20:00.

Yfirdómari:  Árni Siemsen.

Mótshaldari:  Borðtennisdeild Víkings.

Plakat um mótið sett inn 28.2.2018: Íslandsmótið 2018 plakat 1

Aðrar fréttir