Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmótið 2026 – Meistaraflokkar – Breytt staðsetning á laugardegi

Í samræmi við áður kynntar breytingar fer Íslandsmót fullorðinna í borðtennis fram á tveimur ólíkum helgum árið 2026.

Leikið verður um Íslandsmeistaratitlana í meistaraflokki karla og kvenna, tvíliðaleik karla og kvenna og tvenndarleik 21. og 22. mars 2026.

Athugið!

Vegna veðurs, færðar og staðsetningar keppenda hefur Borðtennissamband Íslands ákveðið að færa staðsetningu fyrri keppnisdagsins á Íslandsmótinu í borðtennis frá íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli og yfir í íþróttahúsið Strandgötu, Hafnarfirði (þar sem seinni keppnisdagurinn verður líka).

Allir keppendur utan höfuðborgarsvæðisins hafa verið upplýstir um þetta og eru fulltrúar félaga á höfuðborgarsvæðinu að tryggja að allir séu með á nótunum.

Við viljum að sem fæstir þurfi að keyra í slæmri færð á morgun og vonum að almennt sé ánægja með að nýta góða aðstöðu í Hafnarfirði – með samfelldum hætti um helgina. Dagskráin er annars óbreytt.

Mótið er í umsjá Borðtennissambands Íslands og haldið í samstarfi við Borðtennisdeild BH og Borðtennisdeild Dímonar.

Dagskrá mótsins

Laugardagurinn 21. mars 2026

08:30 Húsið opnar
10.20 Íslandsmótið sett
10.30 Tvenndarleikur, leikið til úrslita
11.00 Tvíliðaleikur karla, leikið fram að undanúrslitum
11.20 Tvíliðaleikur kvenna, leikið fram að undanúrslitum
12.00 Meistaraflokkur karla, leikið fram að undanúrslitum
13.00 Meistaraflokkur kvenna, leikið fram að undanúrslitum

Sunnudagurinn 22. mars 2023
09.40 Húsið opnar
11.00 Undanúrslit: Tvíliðaleikur kvenna og karla
11.40 Úrslit: Tvíliðaleikur kvenna og karla
Hádegishlé
13.00 Undanúrslit: Meistaraflokkur kvenna
13.40 Undanúrslit: Meistaraflokkur karla
14.20 Úrslit: Meistaraflokkur kvenna
15.00 Úrslit: Meistaraflokkur karla
15.40 Verðlaunaafhending

Keppnisfyrirkomulag

Hverjum keppanda er heimilt að keppa í meistaraflokki, tvíliðaleik og tvenndarleik og keppa karlar í karlaflokkum og konur í kvennaflokkum.

Leikið verður í 3-4 manna riðlum og með útslætti að því loknu, sbr. samþykkt stjórnar Borðtennissambands Íslands um breytingu á reglugerð um Íslandsmót:
„Á Íslandsmótinu 2026 skal þó keppt í riðlum í einliðaleik í öllum einliðaleiksflokkum með eftirfarandi hætti:

  • Taki fimm eða færri leikmenn þátt í flokki skal leikið með beinum útslætti líkt og fyrr.
  • Taki sex eða fleiri leikmenn þátt í flokki skal keppt í þriggja manna riðlum (og einum til tveimur fjögurra manna riðlum gangi leikmenn af) þar sem tveir leikmenn komast áfram og beinum útslætti að því loknu.
  • Í meistaraflokki karla og kvenna skulu þeir leikmenn sem hljóta röðun skv. 17. gr. keppnisreglna BTÍ sleppa við riðlakeppni og komast beint áfram í útsláttinn, séu 33 leikmenn eða fleiri skráðir til leiks í flokknum.
  • Að öðru leyti skal raða einum leikmanni í hvern riðil keppninnar í meistaraflokki (dæmi: 8 riðlar = 8 leikmenn fá röðun).“

Keppt verður með hvítum Stiga 3* kúlum. Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í hverjum flokki.

Íslandsmeistaratitill verður veittur fyrir efsta sætið í hverjum flokki. Mótið gildir til styrkleikalista Borðtennissambands Íslands og verður styrkleikalistinn 1. mars 2026 notaður til að raða í mótið.

Leikheimild

Keppni á Íslandsmótinu í borðtennis er opin öllum íslenskum ríkisborgurum og þeim erlendu ríkisborgurum sem hafa átt búsetu og lögheimili á Íslandi í þrjú ár við upphaf móts.

Skráning og greiðsla keppnisgjalda

Skráning og greiðsla keppnisgjalda fer fram í gegnum skráningar- og greiðslukerfi BTÍ:

Skráning á Íslandsmótið í meistaraflokkum 2026

Keppnisgjöld verða ekki endurgreidd eftir að dregið hefur verið í mótið.

Keppnisgjöld

Meistaraflokkur 3.500 kr.
Tvíliðaleikur 1.500 kr. (hver leikmaður)
Tvenndarleikur 1.500 kr. (hver leikmaður)

Ef einhver vandamál eru með skráningarkerfið og greiðslu í gegnum formið má senda fyrirspurn með tölvupósti á netfangið [email protected].

Dregið í mótið
Allar skráningar skulu berast fyrir kl. 20 þriðjudagskvöldið 17. mars. Dregið verður í mótið miðvikudagskvöldið 18. mars klukkan 20:00, í íþróttahúsi Hagaskóla. Dregið verður í mótaforritinu Tournament Software og mun drátturinn verða birtur í gegnum það.

Dómarar
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson verður yfirdómari en Borðtennissamband Íslands auglýsir eftir landsdómurum til að dæma á mótinu. Greitt verður samkvæmt gjaldskrá.

Mótsstjórn og spurningar
Í mótsstjórn sitja Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson, Sveinbjörn Ari Gunnarsson og Ársól Clara Arnardóttir. Um aðstoð við mótsstjórn sjá Guðrún Gestsdóttir, Auður Tinna Aðalbjarnardóttir og Ólafur Elí Magnússon.

Öllum spurningum varðandi mótið skal beint til [email protected] undir yfirskriftinni „Fyrirspurn um Íslandsmót.“

Aðrar fréttir