Íslandsmótið í 1. og 2. flokki 2026
Í samræmi við áður kynntar breytingar fer Íslandsmót fullorðinna fram á tveimur ólíkum helgum árið 2026.
Leikið verður um Íslandsmeistaratitilinn í 1. og 2. flokki karla og kvenna þann 14. mars 2026 í íþróttahúsinu Strandgötu, Hafnarfirði.
Mótið er í umsjá Borðtennissambands Íslands og haldið í samstarfi við Borðtennisdeild BH.
Dagskrá mótsins – Athugið að tímaáætlun var uppfærð 11. mars
Laugardagurinn 14. mars 2026
10.00 Íslandsmótið sett
10.10 1. flokkur karla
10.10 1. flokkur kvenna
11.00 2. flokkur kvenna
13.00 2. flokkur karla
Verðlaun verða veitt að hverjum flokki loknum.
*Verði óvenju mikil skráning í 1. flokki kunnu 2. flokkur karla og/eða kvenna að hefjast síðar um daginn, og verður þá upplýst um það með frétt á bordtennis.is sama kvöld og dráttur fer fram.
Keppnisfyrirkomulag
Hverjum keppanda er heimilt að keppa í tveimur einliðaleiksflokkum þennan keppnisdag og keppa karlar í karlaflokkum og konur í kvennaflokkum.
Leikið verður í 3-4 manna riðlum og með útslætti að því loknu, sbr. samþykkt stjórnar Borðtennissambands Íslands um breytingu á reglugerð um Íslandsmót:
„Á Íslandsmótinu 2026 skal þó keppt í riðlum í einliðaleik í öllum einliðaleiksflokkum með eftirfarandi hætti:
- Taki fimm eða færri leikmenn þátt í flokki skal leikið með beinum útslætti líkt og fyrr.
- Taki sex eða fleiri leikmenn þátt í flokki skal keppt í þriggja manna riðlum (og einum til tveimur fjögurra manna riðlum gangi leikmenn af) þar sem tveir leikmenn komast áfram og beinum útslætti að því loknu.“
Keppt verður með hvítum Stiga 3* kúlum. Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í hverjum flokki.
Íslandsmeistaratitill verður veittur fyrir efsta sætið í hverjum flokki. Mótið gildir til styrkleikalista Borðtennissambands Íslands og verður styrkleikalistinn 1. mars 2026 notaður til að raða í mótið.
Leikheimild
Keppni á Íslandsmótinu í borðtennis er opin öllum íslenskum ríkisborgurum og þeim erlendu ríkisborgurum sem hafa átt búsetu og lögheimili á Íslandi í þrjú ár við upphaf móts.
Skráning og greiðsla keppnisgjalda
Skráning og greiðsla keppnisgjalda fer fram í gegnum skráningar- og greiðslukerfi BTÍ:
Skráning á Íslandsmótið í 1. og 2. flokki 2026
Keppnisgjöld verða ekki endurgreidd eftir að dregið hefur verið í mótið.
Keppnisgjöld
1. flokkur 3000 kr.
2. flokkur 3000 kr.
Ef einhver vandamál eru með skráningarkerfið og greiðslu í gegnum formið má senda fyrirspurn með tölvupósti á netfangið [email protected].
Dregið í mótið
Allar skráningar skulu berast fyrir kl. 20 þriðjudagskvöldið 10. mars. Dregið verður í mótið miðvikudagskvöldið 11. mars klukkan 20:00, í íþróttahúsinu Strandgötu. Dregið verður í mótaforritinu Tournament Software og mun drátturinn verða birtur í gegnum það.
Dómarar
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson verður yfirdómari en Borðtennissamband Íslands auglýsir eftir landsdómurum til að dæma á mótinu. Greitt verður samkvæmt gjaldskrá.
Mótsstjórn og spurningar
Í mótsstjórn sitja Tómas Ingi Shelton og Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson. Um aðstoð við mótsstjórn sjá Guðrún Gestsdóttir og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir.
Öllum spurningum varðandi mótið skal beint til [email protected] undir yfirskriftinni „Fyrirspurn um Íslandsmót.“
Uppfært með breyttri tímaáætlun 11.3.


