Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmótið í borðtennis 2023

Íslandsmótið í borðtennis 2023 fer fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu 53 í Hafnarfirði 3.-5. mars 2023. Mótið er í sameiginlegri umsjá Borðtennisdeildar BH og Borðtennisdeildar KR sem halda mótið fyrir hönd Borðtennissambands Íslands. Leikið verður í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.

Útdráttur á Íslandsmóti 2023

Hér fyrir neðan er að finna upplýsingar um dagskrá mótsins, keppnisfyrirkomulag, leikheimildir, skráningar, keppnisgjöld og drátt mótsins. Sömuleiðis er fjallað um hvaða aðstaða býðst fyrir leikmenn, áhorfendur og fjölmiðla, upplýsingar um samgöngur til og frá keppnisstað, dómgæslu og eftirlit. Neðst eru svo upplýsingar um mótsstjórn og hvert beina skuli fyrirspurnum.

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

Föstudagurinn 3. mars 2023
17.00 Íslandsmótið sett
17.10 Tvíliðaleikur kvenna & karla fram að undanúrslitum
18.00 Tvenndarleikur fram að undanúrslitum

Laugardagurinn 4. mars 2023
09.00 Undanúrslit tvenndar
09.30 Úrslit tvenndar
10.00 Meistaraflokkur karla
11.00 Meistaraflokkur kvenna
12.00 1. Flokkur karla
13.00 1. Flokkur kvenna
14.00 2. Flokkur kvenna
15.00 2. Flokkur karla

Sunnudagurinn 5. mars 2023

10.00 Undanúrslit Tvíliðaleikur kvenna & karla
10.40 Úrslit Tvíliðaleikur kvenna & karla
11.20 Undanúrslit 1. & 2. Flokkur kvenna & karla
12.00 Úrslit 1. & 2. Flokkur kvenna & karla
13.00 Undanúrslit Meistaraflokkur kvenna
13.40 Undanúrslit Meistaraflokkur karla
14.20 Úrslit Meistaraflokkur kvenna
15.00 Úrslit Meistaraflokkur karla
15.40 Verðlaunaafhending

Keppnisfyrirkomulag

Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum nema í meistaraflokki karla og kvenna þar sem leiknar eru 4-7 lotur. Keppt verður með hvítum DHS*** keppniskúlum. Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í hverjum flokki. Íslandsmeistaratitill verður veittur fyrir efsta sætið í hverjum flokki. Mótið gildir til styrkleikalista Borðtennissambands Íslands.

Leikheimild

Keppni á Íslandsmótinu í borðtennis er opin öllum íslenskum ríkisborgurum og þeim erlendu ríkisborgurum sem hafa átt búsetu og lögheimili á Íslandi í þrjú ár við upphaf móts.

Keppnisgjöld

Keppnisgjöld eru 2500 kr. Í öllum flokkum nema í 2. flokki þar sem keppnisgjöld eru 1500 krónur. Þeir leikmenn sem keppa í þremur eða tveimur flokkum fá að keppa í einum flokki til viðbótar án endurgjalds. Gjald í ódýrasta flokknum verður þá fellt niður.

Tvenndarleikur 2500 kr. parið
Tvíliðaleikur 2500 kr. parið
Meistaraflokkur 2500 kr.
1. flokkur 2500 kr.
2. flokkur 1500 kr.

Skráning

Skráning fer fram í gegnum skráningarform BH. Skráningarformið má finna hér: Skráning á Íslandsmót 2023

Einnig er hægt að skrá sig með tölvupósti á netfang borðtennisdeildar BH, [email protected]. Í skráningu skal taka fram fullt nafn keppanda, kennitölu og félag.

Hægt er að fylgjast með skráningum á mótið hér: Skráningar á Íslandsmótið í borðtennis 2023

Greiða skal fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar BH:

Kennitala: 620709-0180
Reikningsnúmer: 0544-26-16207
Afrit sendist á [email protected]
Setjið kennitölu keppanda í skýringu.

Dregið í mótið

Dregið verður í mótið miðvikudagskvöldið 1. mars klukkan 20:00. Allar skráningar skulu berast fyrir þann tíma. Dregið verður í mótaforritinu Tournament Software og mun drátturinn verða birtur í gegnum það.

Aðstaða

Aðstaða verður fyrir keppendur til að hita upp, hlaupa á hlaupabretti, teygja og lyfta lóðum. Sérstakt slökunar- og hugleiðsluherbergi verður sett upp fyrir þá leikmenn sem keppa í meistaraflokki. Búningsklefar verða í boði fyrir hvert kyn.

Rúmgóð áhorfendastúka er í keppnishöllinni. Fyrir áhorfendur verður boðið upp á kaffi og te og lítil setustofa verður sett upp á efri hæð íþróttahússins. Drykkir og léttar veitingar verða seldar auk þess sem lítil verslun er í göngufæri.

Fjölmiðlaaðstaða verður á 2. hæð íþróttahússins og fá fjölmiðlar aðgang að interneti hússins. Léttar veitingar og veigar verða í boði fyrir fjölmiðlafólk.

Samgöngur

Íþróttahúsið við Strandgötu liggur innan 3 mínútna göngufæri frá Firðinum, þar sem strætisvagnar stoppa. Vagn 1 fer frá BSÍ sem er innan göngufæris frá Reykjavíkurflugvelli, vagn 21 fer frá Mjódd, sem er aðkoma flestra strætisvagna utan af landi og vagn 55 fer frá Reykjanesbæ og Keflavíkurflugvelli. Þessir vagnar stoppa allir í Firðinum.

Ef keppendur óska eftir að vera sóttir af sérstökum ástæðum skal hafa samband við mótsstjórn tímanlega í gegnum [email protected] undir yfirskriftinni “BHAkstur”

Dómarar

Yfirdómarar verða Pétur Marteinn Urbancic Tómasson og Hergill Frosti Friðriksson, með fyrirvara um breytingar. Borðtennisdeild BH auglýsir eftir landsdómurum til að dæma á mótinu. Umsóknir um dómarastöðu á mótinu sendist á [email protected] undir yfirskriftinni “Dómarar.”

Mótsstjórn og spurningar

Í mótsstjórn sitja  Hlöðver Steini Hlöðversson (KR), Ingimar Ingimarsson (BH), Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson (BH), Jónína Dögg Loftsdóttir (BH), Nedelina Ivanova (BH), Guðrún Gestsdóttir (KR) og Skúli Gunnarsson (KR).

Öllum spurningum varðandi mótið skal beint til [email protected] undir yfirskriftinni “Fyrirspurn.”

Annað

Myllumerki mótsins er #Bordtennis2023 og verður það notað fyrir fréttir og myndbönd af mótinu. Við hvetjum þá sem birta margmiðlunarefni frá mótinu til að nota myllumerki mótsins.

Aðrar fréttir