Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmótið í borðtennis 28. febrúar til 1. mars 2020 – dagskrá

Auglýsingu og dagskrá á PDF sniði er að finna hér

Íslandsmótið í borðtennis 2020 fer fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu 53 í Hafnarfirði 28. febrúar til 1. Mars. Mótið er í umsjá Borðtennisdeildar BH sem heldur mótið fyrir hönd Borðtennissambands Íslands. Leikið verður í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.

Hér að neðan eru upplýsingar um dagskrá mótsins, keppnisfyrirkomulag, leikheimildir, skráningar, keppnisgjöld og drátt mótsins. Sömuleiðis er fjallað um hvaða aðstaða býðst fyrir leikmenn, áhorfendur og fjölmiðla, upplýsingar um samgöngur til og frá keppnisstað, dómgæslu og eftirlit. Neðst eru svo upplýsingar um mótsstjórn og hvert beina skuli fyrirspurnum.

DAGSKRÁ

Föstudagur 28. febrúar
17.00 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, setur mótið 17.10 Tvíliðaleikur kvenna & karla 

Laugardagur 29. febrúar
09.00 Tvenndarleikur
10.00 Meistaraflokkur karla
11.00 Meistaraflokkur kvenna
12.00 1. flokkur karla
13.00 1. flokkur kvenna
14.00 2. flokkur kvenna
15.00 2. flokkur karla – Efri helmingur (*)
16.00 2. flokkur karla – Neðri helmingur (*)

Sunnudagur 1. mars
11.00 Undanúrslit Tvíliðaleikur kvenna og karla
11.40 Úrslit Tvíliðaleikur kvenna og karla
12.20 Undanúrslit 1. og 2. flokkur kvenna og karla
13.00 Úrslit 1. og 2. flokkur kvenna og karla
13.40 Undanúrslit Meistaraflokkur kvenna og karla
14.20 Úrslit Meistaraflokkur kvenna og karla
15.00 Verðlaunaafhending

*2. Flokkur karla verður settur í gang í tveimur hlutum vegna keppendafjölda. Efri helmingur töflunnar verður ræstur klukkan 15.00 og neðri helmingur töflunnar verður ræstur klukkan 16.00. Þetta verður auglýst nánar þegar drátturinn liggur fyrir.

Keppnisfyrirkomulag
Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum nema í meistaraflokki karla og kvenna þar sem leiknar eru 4-7 lotur. Keppt verður með hvítum Stiga*** keppniskúlum. Verðlaun verða veitt fyrir efstu fjögur sætin í hverjum flokki. Íslandsmeistaratitill verður veittur fyrir efsta sætið í hverjum flokki. Mótið gildir til styrkleikalista Borðtennissambands Íslands.

Leikheimild
Keppni á Íslandsmótinu í borðtennis er opin öllum íslenskum ríkisborgurum og þeim erlendu ríkisborgurum sem hafa átt búsetu og lögheimili á Íslandi í þrjú ár við upphaf móts. Aðeins þeir leikmenn sem eru í 1. flokki eða meistaraflokki mega keppa í meistaraflokki.

Keppnisgjöld
Keppnisgjöld eru 2000 kr. Í öllum flokkum nema í 2. flokki þar sem keppnisgjöld eru 1000 krónur. Þeir leikmenn sem keppa í þremur eða fjórum flokkum fá að keppa í einum flokki án endurgjalds. Gjald í ódýrasta flokknum verður þá fellt niður.
Tvenndarleikur 2.000 kr. parið
Tvíliðaleikur 2.000 kr. parið
Mfl. 2.000 kr.
1. fl. 2.000 kr.
2. fl. 1.000 kr.

Skráning
Skráning fer fram með tölvupósti á netfang borðtennisdeildar BH, ​[email protected]. Í skráningu skal taka fram fullt nafn keppanda, kennitölu og félag. Greiða skal fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar BH:
Kennitala: 620709-0180
Reikningsnúmer: 0544-26-16207
Afrit sendist á [email protected]
Setjið kennitölu, nafn og félag keppanda í skýringu.

Hægt er að fylgjast með skráningum á mótið hér: ​Skráningar á Íslandsmótið í borðtennis 2020

Dregið í mótið
Dregið verður í mótið miðvikudagskvöldið 26. febrúar klukkan 20:00. Allar skráningar skulu berast fyrir þann tíma. Dregið verður í mótaforritinu Tournament Software og mun drátturinn verða birtur í gegnum það.

Eftirlit
Sérstakt eftirlit verður með búnaði leikmanna á sunnudeginum 1. mars í samræmi við keppnisreglur Alþjóðaborðtennissambandsins (ITTF). Leikmenn þurfa að skila spaðanum sínum inn til eftirlits á dómaraborði ​15 mínútum​ fyrir hvern leik á sunnudeginum.

Aðstaða
Aðstaða verður fyrir keppendur til að hita upp, hlaupa á hlaupabretti, teygja og lyfta lóðum. Sérstakt slökunar- og hugleiðsluherbergi verður sett upp fyrir þá leikmenn sem keppa í meistaraflokki. Tveir búningsklefar verða fyrir hvort kyn. Aðgengi fyrir fatlaða er norðanmegin á húsinu.

Rúmgóð áhorfendastúka er í keppnishöllinni. Fyrir áhorfendur verður boðið upp á kaffi og te og lítil setustofa verður sett upp á efri hæð íþróttahússins þar sem hægt verður að fylgjast með Íslandsmótinu í beinni útsendingu af risaskjá. Drykkir og léttar veitingar verða seldar auk þess sem lítil verslun er í göngufæri. Önnur afþreying verður í boði fyrir áhorfendur og keppendur.

Fjölmiðlaaðstaða verður á 2. hæð íþróttahússins og fá fjölmiðlar aðgang að interneti hússins. Léttar veitingar og veigar verða í boði fyrir fjölmiðlafólk.

Sölufulltrúi frá PingPong.is verður með bás á staðnum.

Samgöngur
Íþróttahúsið við Strandgötu liggur innan 3 mínútna göngufæri frá Firðinum, þar sem strætisvagnar stoppa. Vagn 1 fer frá BSÍ sem er innan göngufæris frá Reykjavíkurflugvelli, vagn 21 fer frá Mjódd, sem er aðkoma flestra strætisvagna utan af landi og vagn 55 fer frá Reykjanesbæ og Keflavíkurflugvelli. Þessir vagnar stoppa allir í Firðinum.

Ef keppendur óska eftir að vera sóttir af sérstökum ástæðum skal hafa samband við mótsstjórn tímanlega í gegnum ​[email protected] undir yfirskriftinni “Far óskast!”

Dómarar
Yfirdómarar verða Mímir Kristínarson Mixa og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson. Borðtennisdeild BH auglýsir eftir dómurum til að dæma á mótinu gegn greiðslu. Umsóknir um dómarastöðu á mótinu sendist á ​[email protected] undir yfirskriftinni “Dómarar.”

Mótsstjórn og spurningar
Í mótsstjórn sitja Dagur Snær Steingrímsson, Erla Erlendsdóttir, Haukur Hauksson, Ingimar Ingimarsson, Nedelina Ivanova & Tómas Ingi Shelton.

Öllum spurningum varðandi mótið skal beint til ​[email protected] undir yfirskriftinni “Fyrirspurn.”

Kort

Aðrar fréttir