Íslandsmótið í flokkakeppni unglinga 2024-2025
Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2024-2025 fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla, Sólvöllum 2, 800 Selfossi, laugardaginn 16. nóvember 2024. Borðtennissamband Íslands verður umsjónaraðili mótsins.
Aldursflokkar
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um flokkakeppni:
- Piltar og telpur fædd 2012 og síðar (13 ára og yngri)
- Sveinar og meyjar fædd 2010-2011 (14-15 ára)
- Drengir og stúlkur fædd 2007-2009 (16-18 ára)
Dagskrá
Laugardagur 16. nóvember 2024
10:00 – Piltar fæddir 2012 og síðar
10:00 – Telpur fæddar 2012 og síðar
12:00 – Meyjar fæddar 2010-2011
12:00 – Sveinar fæddir 2010-2011
14:00 – Drengir fæddir 2007-2009
14:00 – Stúlkur fæddar 2007-2009
Keppnisfyrirkomulag
Hverju félagi er heimilt að tilkynna eins mörg lið til þátttöku í hvern flokk og það óskar eftir. Liðum skal þá raðað eftir styrkleika A, B, C o.s.frv. Að lágmarki eru tveir leikmenn í liði. Hver keppandi má aðeins leika í einu liði í einum flokki. Heimilt er að tefla fram liðum með leikmönnum frá ólíkum félögum, sé það til þess fallið að fjölga liðum í keppninni.
Keppt er skv. Corbillion fyrirkomulagi: Tveir einliðaleikir (A:X, B:Y), tvíliðaleikur, og síðan aftur tveir einliðaleikir (A:Y, B:X) ef þörf krefur. Þrjá vinninga þarf til að vinna leik.
Leikið verður í riðlum og síðan er leikið upp úr riðlunum með einföldum útslætti ef fleiri en 6 lið eru skráð í sama flokk. Raðað verður í riðla eftir styrkleika þeirra leikmanna sem skráðir eru í liðin skv. nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.
Leikið verður með Stiga hvítum 3ja stjörnu kúlum á 12 keppnisvöllum.
Leikmenn verða að leika í búningum síns félags.
Skráning og þátttökugjöld
Þátttökugjald í flokkakeppnina er kr. 2.500,- á einstakling. Skráning er opin mánudaginn 11. nóvember til fimmtudagsins 14. nóvember kl. 20:00 og fer fram í gegnum nýtt skráningar- og greiðslukerfi BTÍ.
Eftir að gjöld hafa verið greidd og staðfesting borist er leikmaður skráður í mótið.
Fyrirspurnum er svarað á [email protected] eða í síma 868-6873 (Auður). Í tilfelli forfalla er unnt að óska eftir endurgreiðslu ef forföllin eru tilkynnt daginn fyrir keppnisdag (eða fyrr) á netfangið [email protected].
Mótstjórn
- Auður Tinna Aðalbjarnardóttir (yfirdómari)
- Stefán Sverrisson
- Garðar Gylfason Malmquist
- Erla Ósk Benediktsdóttir
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 14. nóvember 2024 kl. 21:00 í Stóragerði 30, 108 Reykjavík. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software að loknum drætti.