Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Íslandsmótið í flokkakeppni unglinga 2024

Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2024 fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla, Sólvöllum 2, 800 Selfossi, laugardaginn 27. janúar 2024. Borðtennissamband Íslands verður umsjónaraðili mótsins.

Aldursflokkar

Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um flokkakeppni:

  • Piltar og telpur fædd 2011 og síðar (13 ára og yngri)
  • Sveinar og meyjar fædd 2009-2010 (14-15 ára)
  • Drengir og stúlkur fædd 2006-2008 (16-18 ára)

Dagskrá

Laugardagur 27. janúar 2024

  • 10:00 – Piltar fæddir 2011 og síðar
  • 10:00 – Telpur fæddar 2011 og síðar
  • 12:00 – Meyjar fæddar 2009-2010
  • 12:00 – Sveinar fæddir 2009-2010
  • 14:00 – Drengir fæddir 2006-2008
  • 14:00 – Stúlkur fæddar 2006-2008

 

Keppnisfyrirkomulag

Hverju félagi er heimilt að tilkynna eins mörg lið til þátttöku í hvern flokk og það óskar eftir. Liðum skal þá raðað eftir styrkleika A, B, C o.s.frv. Að lágmarki eru tveir leikmenn í liði. Hver keppandi má aðeins leika í einu liði í einum flokki.

Keppt er skv. Corbillion fyrirkomulagi: Tveir einliðaleikir (A:X, B:Y), tvíliðaleikur, og síðan aftur tveir einliðaleikir (A:Y, B:X) ef þörf krefur. Þrjá vinninga þarf til að vinna leik.

Leikið verður í riðlum og síðan er leikið upp úr riðlunum með einföldum útslætti ef fleiri en 6 lið eru skráð í sama flokk. Raðað verður í riðla eftir styrkleika þeirra leikmanna sem skráðir eru í liðin skv. nýjasta styrkleikalista BTÍ.

Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.

Leikið verður með Stiga hvítum 3ja stjörnu kúlum á 10 keppnisvöllum.

Leikmenn verða að leika í búningum síns félags.

 

Skráning og þátttökugjöld

Þátttökugjald í flokkakeppnina er kr. 4.000,- á lið. Greiðsla leggist inn á reikning Borðtennissambands Íslands sem er 0334-26-050073, kt. 581273-0109. Greiðsla er staðfesting á þátttöku og skal þátttökugjaldið helst greiðast um leið og skráning fer fram, en í síðasta lagi fyrir upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.

Skráningar má senda á [email protected]. Kennitölur leikmanna skulu fylgja með öllum skráningum.

Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 25. janúar 2024 kl. 18:00.

Mótstjórn

Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson

Stefán Sverrisson

Tómas Ingi Shelton

Yfirdómari: Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson

Dregið verður í mótið hjá BH fimmtudaginn 25.janúar 2024 kl. 20:00. Drátturinn verður birtur á vef Tournament Software að loknum drætti.

Aðrar fréttir