Íslandsmótið í flokkakeppni unglinga 2025-2026
Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2025-2026 fer fram í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli, Vallarbraut 18, 860 Hvolsvelli, laugardaginn 11. október 2025. Borðtennissamband Íslands verður umsjónaraðili mótsins.
Aldursflokkar
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um flokkakeppni:
Piltar og telpur fædd 2013 og síðar (13 ára og yngri)
Sveinar og meyjar fædd 2011-2012 (14-15 ára)
Drengir og stúlkur fædd 2008-2010 (16-18 ára)
Dagskrá
Laugardagur 11. október 2025
10:00 – Piltar fæddir 2013 og síðar
10:00 – Telpur fæddar 2013 og síðar
12:00 – Meyjar fæddar 2011-2012
12:00 – Sveinar fæddir 2011-2012
14:00 – Drengir fæddir 2008-2010
14:00 – Stúlkur fæddar 2008-2010
Keppnisfyrirkomulag
Hverju félagi er heimilt að tilkynna eins mörg lið til þátttöku í hvern flokk og það óskar eftir. Liðum skal þá raðað eftir styrkleika A, B, C o.s.frv. Að lágmarki eru tveir leikmenn í liði. Hver keppandi má aðeins leika í einu liði í einum flokki. Heimilt er að tefla fram liðum með leikmönnum frá ólíkum félögum, sé það til þess fallið að fjölga liðum í keppninni.
Keppt er skv. Corbillion fyrirkomulagi: Tveir einliðaleikir (A:X, B:Y), tvíliðaleikur, og síðan aftur tveir einliðaleikir (A:Y, B:X) ef þörf krefur. Þrjá vinninga þarf til að vinna leik.
Leikið verður í riðlum og síðan er leikið upp úr riðlunum með einföldum útslætti ef fleiri en 6 lið eru skráð í sama flokk. Raðað verður í riðla eftir styrkleika þeirra leikmanna sem skráðir eru í liðin skv. nýjasta styrkleikalista BTÍ.
Verðlaun verða veitt fyrir fjögur efstu sætin í hverjum flokki.
Leikið verður með Stiga hvítum 3ja stjörnu kúlum.
Leikmenn verða að leika í búningum síns félags.
Skráning og þátttökugjöld
Þátttökugjald í flokkakeppnina er kr. 3.000,- á einstakling. Skráning er opin til miðvikudagsins 8. október kl. 21:00 og fer fram í gegnum skráningar- og greiðslukerfi BTÍ.
Eftir að gjöld hafa verið greidd og staðfesting borist er leikmaður skráður í mótið.
Fyrirspurnum er svarað á [email protected] eða í síma 868-6873 (Auður). Í tilfelli forfalla er unnt að óska eftir endurgreiðslu ef forföllin eru tilkynnt daginn fyrir keppnisdag (eða fyrr) á netfangið [email protected].
Mótstjórn
Ólafur Elí Magnússon (yfirdómari)
Reynir Björgvinsson
Rubén Illera López
Bæring Jón Breiðfjörð Guðmundsson
Auður Tinna Aðalbjarnardóttir
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 9. október 2025 kl. 21:00 í Lissabon, Portúgal. Drátturinn verður birtur á Tournament Software.
Uppfært 1.10.


