Íslendingar úr leik á Norður-Evrópumótinu
Íslensku leikmennirnir töpuðu öllum leikjum sínum í einstaklingskeppni Norður-Evrópumótsins í borðtennis í Osló í dag. Íslensku leikmönnunum tókst ekki að vinna lotu í dag. Lið Íslands á mótinu var óvenju ungt, og Sigrún Ebba, fædd 1995, næstelst í liðinu. Þetta mót fer í reynslubankann hjá leikmönnunum.
Leikið var til úrslita í liðakeppni í dag og urðu Svíar Norður-Evrópumeistarar bæði í liðakeppni karla og kvenna. Þá var leikið að undanúrslitum í einstaklingskeppni en leikið verður til úrslita 22. maí.
Úrslit úr leikjum Íslendinga 21. maí
Tvenndarleikur
- Kári Ármannsson/Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir – Fredrik Meringdal/Ilka Doval, Noregi 0-3 (10-12, 2-11, 4-11)
- Magnús Jóhann Hjartarson/Berglind Ósk Sigurjónsdóttir – Leonids Maslovs/Stefanie Christensen, Lettland/Danmörk 0-3 (8-11, 8-11, 7-11)
- Magnús Gauti Úlfarsson/Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir – Adrian Wetzel/Rebecca Carlsen, Noregi 0-3 (7-11, 1-11, 9-11)
Einliðaleikur karla
- Magnús Jóhann Hjartarson – Marcus Wærstad, Noregi 0-4 (8-11, 8-11, 6-11, 8-11)
- Kári Ármannsson – Adrian Wetzel, Noregi 0-4 (2-11, 7-11, 2-11, 7-11)
- Magnús Gauti Úlfarsson – Magnus Bolstad Holm, Noregi 0-4 (4-11, 6-11, 6-11, 11-13)
Einliðaleikur kvenna
- Berglind Ósk Sigurjónsdóttir – Anne Sophie Kalvatn, Noregi 0-4 (4-11, 7-11, 1-11, 4-11)
- Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir – Sarah Horgen, Noregi 0-4 (5-11, 2-11, 2-11, 1-11)
- Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir – Annika Lundström, Finnlandi 0-4 (6-11, 5-11, 2-11, 5-11)
Tvíliðaleikur karla
- Magnús Jóhann Hjartarson/Magnús Gauti Úlfarsson – Andreas Dilling/Kaspar Rasmussen, Danmörku 0-3 (7-11, 1-11, 9-11)
Tvíliðaleikur kvenna
- Berglind Ósk Sigurjónsdóttir/Jannika Oksanen, Finnlandi – Stefanie Christensen/Sofie Egeholt, Danmörku 0-3 (3-11, 8-11, 10-12)
- Kolfinna Bergþóra Bjarnadóttir/Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir – Sarah Horgen/Nora Bagner Nielsen, Noregi 0-3 (8-11, 8-11, 5-11)
Á forsíðunni má sjá Kolfinnu á Smáþjóðaleikunum í fyrra.
ÁMU