Íslenska drengjalandsliðið leikur á EM unglinga
Íslenska drengjalandsliðið skipað leikmönnum yngri en 19 ára leikur á Evrópumeistarmóti unglinga dagan 18. – 25. júlí. Leikið er í Varaždin í Króatíu. Liðið er skipað þeim Björgvin Inga Ólafssyni, Inga Darvis Rodriguez og Matthíasi Þór Sandholt. Þjáfari liðsins er Tómas Ingi Shelton.
Strákarnir byrja á að leika við Búlgari á sunnudag. Fluttar verða fréttir af strákunum hér á bordtennis.is sem og á facebook síðu BTÍ.
Áfram Ísland!