Kári Ármannsson sigraði í meistaraflokki karla á stigamóti KR
Fyrsta stigamót keppnistímabilsins fór fram í Íþróttahúsi Hagaskóla sunnudaginn 20. september. Keppendur komu frá BH, HK, KR og Víkingi. Keppni var auglýst í öllum flokkum en keppni féll niður í meistaraflokki kvenna.
Meistaraflokkur karla
- Kári Ármannsson, KR
- Magnús Gauti Úlfarsson, BH
- Pétur Marteinn Tómasson, KR
- Ingi Darvis Rodriguez, Vík.
Kári vann Magnús Gauta 13-11, 11-7, 5-11, 12-10 og vann sitt fyrsta mót í meistaraflokki.
1. flokkur karla
- Magnús Gauti Úlfarsson, BH
- Róbert Már Barkarson, Vík.
3.-4. Brynjólfur Þórisson, HK
3.-4. Ísak Indriði Unnarsson, Vík.
Magnús vann alla sína leiki í flokkum og vann Róbert 3-0 (11-7, 11-6, 11-6) í úrslitaleik.
Verðlaunahafar í 1. flokki karla.
1. flokkur kvenna
- Stella Karen Kristjánsdóttir, Vík.
- Þórunn Ásta Árnadóttir, Vík.
Stella vann Þórunni 3-0 (11-8, 11-7, 11-6) í úrslitaleik en eingöngu voru tveir keppendur í flokknum.
Verðlaunahafar í 1. flokki kvenna.
2. flokkur karla
- Karl A. Claesson, KR
- Birgir Ívarsson, BH
3.-4. Ellert Kristján Georgsson, KR
3.-4. Ingi Brjánsson, KR
Karl vann sitt fyrsta mót í 2. flokki karla þegar hann lagði Birgi í úrslitaleik 3-2 (9-11, 8-11, 11-8, 11-8, 12-10), þar sem Birgir var 10-4 yfir í oddalotunni.
Verðlaunahafar í 2. flokki karla.
2. flokkur kvenna
- Karitas Ármannsdóttir, KR
- Stella Karen Kristjánsdóttir, Vík.
3.-4. Guðbjörg Lív Margrétardóttir, KR
3.-4. Þórunn Ásta Árnadóttir, Vík.
Þetta var fyrsta mót Karitasar aftur eftir árshlé frá borðtennis og sigraði hún í 2. flokki kvenna, þar sem hún lagði Íslandsmeistarann í flokknum, Stellu K. Kristjánsdóttur tvisvar. Í úrslitum vann Karitas Stellu 3-2 (13-11, 3-11, 12-10, 15-17, 11-7).
Verðlaunahafar í 2. flokki kvenna.
Meistaraflokkur kvenna
Aðeins einn keppandi var skráður til leiks, Eyrún Elíasdóttir úr Víkingi, og féll keppni því niður í flokknum.
Myndirnar tóku Ingimar Ingimarsson og Kristján Kári Gunnarsson.
Úrslit úr öllum leikjum fá finna á vef Tournament Software: http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=8BB39C71-A99D-4FD0-B502-76941DFF8A6D
ÁMU