Kári Mímisson sigraði í meistaraflokki karla á punktamóti KR
Góð þátttaka var á fyrsta borðtennismóti vetrarins, sem fór í KR-heimilinu við Frostaskjól í dag. Tæplega 60 börn og unglingar voru skráð til leiks í flokkum unglinga 15 ára og yngri og tæplega 40 keppendur voru í meistara- og 1. flokki.