Karlaliðið tapaði fyrsta leiknum á Norður-Evrópumótinu
Íslensku karlarnir töpuðu fyrsta leik sínum í liðakeppni á Norður-Evrópumótinu. Leikið var gegn Svíum sem unnu leikinn 3-0. Íslensku karlarnir unnu eina lotu, en hana vann Ingi Darvis Rodriguez, gegn Martin Friis.
Næsti leikur liðsins er gegn Lettlandi-1, en hann fer fram 16. ágúst kl. 9 að staðartíma. Lettar töpuðu 0-3 fyrir Svíum, eins og Íslendingar, svo úrslitin úr leik liðanna ráða hvort liðið verður í 2. sæti í riðlinum.
Úrslit má sjá hér: https://tt.esit.lv/#/competition/2232
Forsíðumynd var tekin af Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur sem er viðstödd mótið.