Keppendur frá fjórum félögum á Héraðsmóti HSK
Héraðsmót HSK í borðtennis var haldið á Hvolsvelli 6. maí. Keppendur voru 47 frá fjórum félögum: Dímon, Eyfellingi, Garpi og Heklu.
Sigurvegarar í einstökum flokkum voru þessir:
Tátur 11 ára og yngri: Maja Swiderska, Dímon
Hnokkar 11 ára og yngri: Rúnar Þorvaldsson, Dímon
Telpur 12-13 ára: Sóldís Birta Magnúsdóttir, Dímon
Piltar 12-13 ára: Þorgils Gunnarsson, Hekla
Sveinar 14-15 ára: Heiðar Óli Guðmundsson, Hekla
Stúlkur 16-18 ára: Íris Þóra Sverrisdóttir, Garpi
Drengir 16-18 ára: Smári Valur Guðmarsson, Garpi
Konur 18-39 ára: Ólafía Bjarnheiður Ásbjörnsdóttir, Dímon
Karlar 18-39 ára: Reynir Björgvinsson, Dímon
Karlar 40+ ára: Ólafur Elí Magnússon, Dímon
Ítarlegri úrslit má sjá fljótlega á vef HSK, www.hsk.is.
Þá verða úrslit úr öllum leikjum sett inn í Tournament Software og verða aðgengileg á www.tournamentsoftware.com
ÁMU