Keppendur ÍFR komu heim með fimm verðlaun frá Malmö
Átta keppendur úr ÍFR tóku um síðustu helgi þátt í borðtennismóti fyrir fatlaða leikmenn í Malmö í Svíþjóð. Keppendurnir náðu flottum árangri og komu heim með fimm verðlaun. Allir keppendurnir unnu leik á mótinu og sumir unnu marga leiki.
Jóna Kristín Erlendsdóttir sigraði í flokki 1-3b, sjá mynd neðst. Hún vann sinn riðil í „performance“ 3 og komst í 8 manna úrslit. Þar datt hún út og sigraði svo í flokki 1-3b.
Jóna Kristín og Hákon Atli Bjarkason fengu bronsverðlaun í tvíliðaleik b, sömuleiðis Nóni Sær Ágeirsson og Volodymyr Cherniavskyi.
Anna Karen Malmquist spilaði frábærlega og komst í A-úrslit í U15 ára flokki.
Hákon Atli Bjarkason sigraði sterkan spilara frá Austurríki í riðlinum en féll úr leik í 8 manna úrslitum gegn ríkjandi paralympic meistara.
Agnes Lovísa Jóhannsdóttir spilaði mjög vel, vann tvo leiki og komst fimm sinnum í oddalotu.
Björgvin Arnar Arnarsson spilaði líka mjög vel, vann leik og tapaði öðrum í oddalotu.
Volodymyr Cherniavskyi fór upp úr riðlinum í flokki C1-3 en tapaði í 8 manna úrslitum gegn paralympic fara frá Kanada.
Nóni Sær Ásgeirsson vann tvo leiki í „performance“ 3 og spilaði vel í sínum flokki.
Óskar Kemp komst í 8 manna úrslit bæði í „performance“ 3 og í flokki 11.

Myndir frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.
Uppfært með viðbót 12.2.


