Keppendur Íslands á EM unglinga komnir til Portúgal
Evrópumeistaramót unglinga hefst í Guimarães, Portúgal þann 14. júlí og stendur til 23. júlí. Íslensku liðin eru komin til Portúgal og hefja keppni í liðakeppni 14. júlí. Liðakeppnin stendur yfir 14.-18. júlí en 19.-23. júlí verður leikið í einstaklingsgreinum.
Íslensku kadett strákarnir leika í G-riðli með Írlandi, Slóveníu og Kýpur. Junior drengirnir eru í H-riðli með Austurríki, Sviss og Svartfjallalandi.
Liðin skipa:
Kristján Viðar Haraldsson, unglingalandsliðsþjálfari er þjálfari í ferðinni. Ingimar Ingimarsson, formaður BTÍ er með í för og Hannes Guðrúnarson alþjóðadómari verður dómari á mótinu.
Hægt er að fylgjast með á vef mótsins á slóðinni http://www.ettu.org/en/events/european-youth-championships/general-information/ og á Facebook síðu Borðtennissambands Íslands.