Keppendur Íslands hefja keppni á EM 11. október
Evrópumeistaramót fullorðinna í einstaklingsgreinum fer fram í Ljubljana í Slóveníu 11.-18. október. Leikið er í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik.
Leikmenn Íslands á mótinu:
Ingi Darvis Rodriguez, Víkingi
Matthías Þór Sandholt, BH
Sól Kristínardóttir Mixa, BH
Íslensku keppendurnir hefja keppni 11. október. Í einliðaleik er leikið í riðlum, sem oftast eru þriggja manna. Í tvíliðaleik og tvenndarleik er leikið með einföldum útslátti.
Þessir leikir eru á dagskrá 11. október. Uppgefinn tími er staðartími, sem er tveimur tímum á undan tíma á Íslandi:
kl. 09.35 Tvenndarleikur: Matthías/Silcock, Jersey – Johnson/Khalid, Skotlandi – borð 3
kl. 10.45 Tvenndarleikur: Ingi Darvis/Sól – Monteiro/Leal, Portúgal – borð 1
kl. 13.05 Einliðaleikur kvenna (30. riðill): Sól – Labosova, Slóvakíu – borð 6
kl. 14.30 Einliðaleikur karla (12. riðill): Matthías – Sisanovas, Litháen – borð 6
kl. 15.05 Einliðaleikur karla (21. riðill): Ingi Darvis – Ocal, Tyrklandi – borð 7
kl. 19.45 Tvíliðaleikur kvenna: Sól/Stasevska, Lettlandi – Hashani/Uce-Nikolov, Kosóvo/Norður-Makedóníu – borð 4
kl. 20.20 Tvíliðaleikur karla: Matthías/Lehtola, Finnlandi – Wang, Slóvakíu/Gionis, Grikklandi – borð 4
kl. 20.55 Tvíliðaleikur karla: Ingi Darvis/Sisanovas, Litháen – Dilas/Levajac, Serbíu – borð 5
Úrslit frá mótinu á vef ETTU: https://www.ettu.tv/events/167/4/1/5/5
Hægt er að horfa beint á leiki á mótinu á vef ETTU og eru sýndir leikir beint á borðum 1-8: https://www.youtube.com/@ettutvofficial
Forsíðumynd af Sól úr myndasafni.
Uppfært 11.10.


