Keppni á Norður-Evrópumóti unglinga hefst á morgun
Keppni á Norður-Evrópumóti unglinga í Eistlandi hefst á morgun með liðakeppni. Lið frá 8 löndum eru mætt til leiks en ekki keppa öll lönd í öllum flokkum.
Á mótinu leikur m.a. fyrir Noreg hinn hálf-íslenski Bendik Brekke Þorfinnsson.
Á heimasíðu Borðtennissambands Eistlands er tengill á mótið: http://www.lauatennis.ee/web/node/242
Íslensku unglingarnir tóku þátt í æfingabúðum í gær og í dag með eistnesku unglingunum.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá Evu Jósteinsdóttur, fararstjóra.
ÁMU