Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Keppni hefst á EM unglinga 12. júlí

Keppni hefst á EM unglinga í Malmö í Svíþjóð þann 12. júlí en þá hefst liðakeppnin. Dregið hefur verið í riðla.

Kadettlið meyja leikur í H-riðli með Belgíu, Danmörku, Hollandi og Lettlandi.

Kadettlið sveina er líka í H-riðli með Búlgaríu, Skotlandi og Spáni.

Júníorlið drengja spilar í G-riðli með Kýpur, Sviss og Úkraínu.

Sjá má keppendur Íslands í frétt frá 29. júní sl.

Hér má sjá leiki og úrslit á mótsinu: https://www.ettu.org/en/events/european-youth-championships/draws–amp–results/

Mynd af hópnum frá Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur.

Aðrar fréttir