Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Keppni í 3. deild hefst 2. október

Keppni í 3. deild karla hefst sunnudaginn 2. október og fyrstu tvær umferðir í deildinni verða spilaðar í HK, Snælandsskóla í Kópavogi. Fyrri umferðin hefst kl 10 og seinni kl 14.

Alls voru 11 lið skráð til leiks í 3. deild. Skipta þurfti deildinni upp í tvennt, A og B riðil. Í A riðli keppa sex lið og í B riðli fimm lið. Dregið var í riðla í dag. KR á fjögur lið í 3. deild, BR og Víkingur eiga tvö lið. HK, BH og Garpur eiga eitt lið hvert.

Til að tryggja sem fæstar innbyrðis viðureignir liða voru lið sama félags pöruð saman og dregið fyrst á milli þeirra. Fyrst var dregið á milli KR C og KR D, þá KR E og KR F, svo BR C og BR D, þá Víkingur C og Víkingur D, loks HK D, BR C og Garps. Mótanefnd sá um framkvæmd dráttarins en viðstaddir voru Björn Gunnarsson og Sigurjón Ólafsson úr mótanefnd og Pétur Gunnarsson frá KR.

Niðurstaðan var eftirfarandi

3. deild A skipa

  • KR C
  • KR E
  • BR C
  • Víkingur D
  • HK D
  • BH C

3. deild B skipa

  • KR D
  • KR F
  • BR D
  • Víkingur C
  • Garpur

Niðurröðun leikja hefur verið birt í Tournament Software. Einnig hefur listi með nöfnum keppenda í hverju liði verið birtur á vefnum en frestur til að skila inn nöfnum rennur út á miðnætti 24. september.

Eins og áður hefur komið fram verður fyrirkomulag keppni með breyttu sniði.

Karladeildir: Í nýju fyrirkomulagi verða leiknir allt að 10 leikir í viðureign, fyrst 6 einliðaleikir, svo tvíliðaleikur og að lokum 3 einliðaleikir. Vinna þarf 6 leiki til að vinna viðureign. Þrír til fimm leikmenn leika hverja viðureign. Þrír sömu leikmenn spila alla einliðaleikina en frjálst er að velja hvern sem er úr fimm manna liði í tvíliðaleikinn. Spila skal hverja viðureign á tveimur borðum. Nýtt fyrirkomulag á því ekki að taka mikið lengri tíma en í fyrra fyrirkomulagi. Spilaðar verða tvær umferðir í öllum deildum.

Keppnisfyrirkomulag í karladeildum:

Heima Gestir
Leikur 1 A Y
Leikur 2 B Z
Leikur 3 C X
Leikur 4 A Z
Leikur 5 B X
Leikur 6 C Y
Leikur 7 Tvíliðaleikur Tvíliðaleikur
Leikur 8 A X
Leikur 9 B Y
Leikur 10 C Z

Liðið sem fyrr er að sigra 6 leiki vinnur viðureignina. Staðan 5-5 er jafntefli og gefur það eitt stig í töflu en sigur veitir tvö stig. Engar breytingar eru leyfðar á niðurröðun eftir að viðureignin er hafin. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

Aðrar fréttir