Keppni í riðlum í 3. deild lauk 12. febrúar
Síðustu leikirnir í riðlakeppni 3. deildar fóru fram í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi sunnudaginn 12. febrúar.
Í A-riðli eru þrjú lið með 14 stig að loknum 8 leikjum, HK-D, KR-C og KR-E. Þá ræður hlutfall unninna og tapaðra leikja í riðlinum því hvaða tvö lið fara áfram í úrslitakeppnina. Mótanefnd skoðar úrslitin nánar og gefur út lokastöðuna.
BH-C lauk keppni með 8 stig, Víkingur-D með 4 stig og BR-C með 2 stig.
Í B-riðli lauk Víkingur-C keppni með fullt hús stiga, eða 16 stig. Garpur varð í 2. sæti með 12 stig. Þessi tvö lið fara í úrslitakeppnina.
KR-D og KR-F ljúka bæði keppni með 5 stig og BR-D fékk ekkert stig.
Úrslit úr leikjum í 3.deild karla 12. febrúar
A-riðill:
KR C – Víkingur D 6-0 (Víkingur-D mætti ekki til leiks)
KR E – BR C 6-2
BH C – HK D 6-1
HK D – KR E 3-6
BR C – KR C 2-6
Víkingur D – BH C 0-6 (Víkingur-D mætti ekki til leiks)
B-riðill:
KR D – BR D 6-0
KR F – Víkingur C 0-6
Víkingur C – KR D 6-1
BR D – Garpur A 0-6
Á forsíðunni má sjá lið KR-E, mynd frá síðasta keppnistímabili.
Uppfært 13.2.