Kínverjar heimsmeistarar í liðakeppni karla
Kínverska landsliðið varð heimsmeistari í liðakeppni karla í 21. skipti, með 3-0 sigri á liði Þýskalandi í úrslitum á HM í Halmstad í Svíþjóð. Kína fór í gegnum mótið án þess að tapa einstaklingsleik, þ.e. liðið vann alla leiki sína 3-0.
Ma Long vann Timo Boll 3-0 í fyrsta leiknum og Fan Zhendong vann Ruwen Filus örugglega 3-0 í öðrum leiknum. Patrick Franziska vann einu lotu Þýskalands í þriðja leiknum gegn Xu Xin þegar hann tapaði 1-3.
Svíþjóð og Suður-Kórea fengu bronsverðlaunin. Kína vann Svíþjóð 3-0 í undanúrslitum og Þýskaland vann Suður-Kóreu 3-2 í hinum undanúrslitunum. Það er orðið langt síðan Svíar náðu síðast í verðlaun í liðakeppni á HM en það var árið 2001.
Fan Zhendong fékk Viktor Barna verðlaunin sem dýrmætasti leikmaðurinn fyrir lið sitt.
Næsta HM verður í Búdapest í Ungverjalandi árið 2019.
Mynd af heimsmeisturum af vef ITTF.
ÁMU