Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Kjör á borðtennisfólki ársins 2023

Komið er að kjöri á borðtennisfólki ársins. Kosningin fer fram með rafrænum hætti. Kosið er um borðtenniskonu- og borðtenniskarl ársins. Kosningin hefst í dag, mánudaginn 11. desember 2023 og lýkur henni kl. 23:59 fimmtudaginn 21. desember 2023.

Allir virkir leikmenn BTÍ sem eru 16 ára eða eldri hafa kosningarétt auk stjórnar og varastjórnar BTÍ, landsliðsþjálfara og unglingalandsliðsþjálfara. Sá leikmaður sem hlýtur flest atkvæði hlýtur titilinn borðtenniskona og borðtenniskarl ársins 2023.

Hægt er að greiða atkvæði með því að smella hér.

Aðrar fréttir