Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Kjör á borðtennisfólki ársins 2024

Komið er að kjöri á borðtennisfólki ársins. Kosningin fer fram með rafrænum hætti. Kosið er um borðtenniskonu- og borðtenniskarl ársins. Kosningin hefst í dag, mánudaginn 9. desember 2024 og lýkur henni kl. 23:59 fimmtudaginn 19. desember 2024.

Allir virkir leikmenn BTÍ sem eru 16 ára eða eldri hafa kosningarétt auk stjórnar og varastjórnar BTÍ, landsliðsþjálfara og unglingalandsliðsþjálfara. Sá leikmaður sem hlýtur flest atkvæði hlýtur titilinn borðtenniskona og borðtenniskarl ársins 2024.

Hægt er að greiða atkvæði með því að smella hér.

Aðrar fréttir