Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

image description

Kjör borðtennismanns ársins.

Kjör á borðtennismanni og konu ársins fer fram laugardaginn 15. desember nk. milli kl. 13.00 og 16.00 að Suðurlandsbraut 10, 2. hæð á skrifstofu Sigurðar Vals Sverrissonar formanns BTÍ.

Atkvæðisrétt um kjör á borðtennismann og -konu ársins hafa allir virkir
leikmenn 16 ára og eldri á styrkleikalista BTÍ hverju sinni, stjórn og
varastjórn BTÍ og landsliðsþjálfarar.

Sá borðtennismaður og -kona sem flest atkvæði fá verða borðtennismaður
og -kona ársins.  Fái tveir eða
fleiri leikmenn jafnmörg atkvæði sker hlutkesti úr um hver/hvor skuli hljóta
titilinn.

Minnt er sérstaklega á, að kjörseðlar eru afhentir og þá skal útfylla á kjörstað en þeir eru síðan settir í lokaðan kjörkassa.  Ekki er heimilt að greiða atkvæði fyrir aðra, þ.e. þeir sem vilja greiða atkvæði verða að mæta á kjörstað.

Stjórn BTÍ

Aðrar fréttir