Komið að úrslitum í liðakeppni á Ólympíuleikunum
Komið er að úrslitum í liðakeppni á Ólympíuleikunum í London. Ekki kemur á óvart að Kínverjar hafa tryggt sér sæti í úrslitum bæði í karla- og kvennaflokki.
Úrslitin fara fram þann 7. ágúst kl. 14.30 en leikurinn um 3. sætið verður kl. 10.00.
Í karlaflokki sigruðu Kínverjar Þjóðverja 3-1 í undanúrslitum, þar sem Þjóðverjinn Timo Boll lagði heimsmeistarann Zhang Jike 3-1.
Í hinum undanúrslitunum mættust Hong Kong og Suður-Kórea, og sigruðu Kóreumenn 3-0.
Úrslitin í liðakeppni karla fara fram 8. ágúst kl. 14.30 en leikurinn um 3. sætið verður kl. 10.00.
ÁMU