Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

KR-A deildarmeistarar í Raflandsdeild kvenna

Tvær umferðir fóru fram í  Raflandsdeildinni í Íþróttahúsinu við  Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 20. janúar., 7. og 8. umferð. Síðustu tvær umferðirnar verða leiknar helgina 17.-18. febrúar.

KR-A hefur tryggt sér deildarmeistaratitilinn í 1. deild kvenna. Liðið hefur 16 stig og hlutfall unninna og tapaðra leikja er 24-1. Víkingur er í 2. sæti með 12 stig og hlutfall unninna og tapaðra leikja 19-11. Víkingur getur náð KR-A að stigum en ekki náð hagstæðara hlutfalli unninna og tapaðra leikja. KR-C hefur 10 stig og KR-B hefur 6 stig. KR-D og KR-E hafa 2 stig hvort lið.

Víkingur-A hefur forystu í 1. deild karla og hefur liðið 16 stig. BH-A er í 2. sæti með 12 stig og á enn möguleika að ná Víkingum að stigum. KR-A er í 3. sæti með 10 stig og HK-A er í 4. sæti með 6 stig. Víkingur-B hefur 4 stig og Víkingur-C hefur ekkert stig. Það er því ljóst að annað Víkingsliðanna fellur í 2. deild.

Hér fyrir neðan eru úrslit í liðsleikjunum en úrslit úr einstökum leikjum verða settar á næstunni á Tournament Software, http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=73CC2211-E100-4394-9C49-BF9A58B15225.

7. umferð, Raflandsdeild karla

Víkingur B – Víkingur C 3-1

BH A -HK A 3-0

Víkingur A – KR A 3-0

7. umferð raflandsdeild kvenna

Víkingur – KR C 3-0

KR A – KR B 3-0

KR D – KR E 1-3

8. umferð raflandsdeild karla

Víkingur A – Víkingur C 3-0

KR A – BH A 3-1

HK A – Víkingur B 3-0

8. umferð raflandsdeild kvenna

KR E- KR C 2-3

KR B – KR D 3-1

Víkingur – KR A 1-3

Á forsíðumyndinni má sjá lið KR-A 20.1.2018 (f.v. Ásta M. Urbancic, Aldís Rún Lárusdóttir og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir). Sigrún Ebba Urbancic Tómasdóttir lék einnig með liðinu á keppnistímabilinu.

 

ÁMU

Aðrar fréttir